Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Er ný uppspretta Ómíkron fundin? „Hún mun trúlega koma aftur og elta okkur í framtíðinni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Vísindamenn í Bandaríkjunum staðfesta nú að Ómíkronafbrigði kórónuveirunnar hafi fundist í hjartardýrum þar um slóðir. Óttast þeir að veiran getið dvalið í dýrunum og hugsanlega þróast í önnur afbrigði.

DV hefur eftir New York Times að Ómíkron afbrigðið hafi fundist í hjartardýrum af White Tailed tegundinni í Staten Island en landbúnaðarráðuneyti Joe Bidens forseta Bandaríkjanna hefur aukreitis staðfest að veiran hafi einnig verið greind í hjartardýrum í Arkansas, Illinois, Kansas, Maine, Massachusetts, Minnesota, New Jersey, New York, Norður-Karólínu, Oklahoma, Pennsylvania, Tennessee og Virginíu

„Dreifing veirunnar í hjartardýrum gefur henni ráðrúm til að aðlagast og þróast. Hún mun trúlega koma aftur og elta okkur í framtíðinni,“ er haft eftir Vivek Kapur, örverufræðing við Penn State University, í New York Times.

Miðað við niðurstöður rannsóknar á málinu hefur veiran borist úr manninum í hjartardýrin en ekkert bendir enn til þess að veiran hafi borist úr hjartardýrum í manneskjur.

Það er því ljóst að hundar eru ekki einu dýrin sem smitast hafa af veirunni skæðu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -