Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Gróft myndefni af börnum fannst í síma konunnar sem sagðist vera Madeleine McCann

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Breski miðillinn DailyMail hefur greint frá því að gróft myndefni sem sýni börn hafi fundist í síma sem sagður er tilheyra Juliu Faustyna. Julia steig fram í sviðsljósið fyrr á árinu og sagðist vera viss um að hún væri í raun Madeleine McCann sem hvarf sporlaust í maí árið 2007. Rannsóknir leiddu í ljós að Julia væri pólsk að uppruna en fór Julia í kjölfarið til Bandaríkjanna á vegum Fiu Johanson, sem segist vera rannsóknarmiðill. Var það Johansson sem tilkynnti málið til lögreglu og afhenti þeim síma Juliu en málið er litið  alvarlegum augum.

Í langri yfirlýsingu Juliu segist hún ekki vera barnaníðingur heldur þolandi barnaníðings. „Það var ekki ætlun mín að hryggja eða vekja neikvæðar tilfinningar hjá nokkrum manni, sérstaklega ekki hjá McCann-fjölskyldunni.“ Þá gagnrýdi hún vinnbrögð rannsóknarmiðilsins og sagði hana hafa neitað að afhenda sér gögn er varða erfðafræðirannsóknina sem hún gekkst undir. Johannsson svaraði ásökunum Juliu í viðtali við breka miðilinn The Mirror þar sem hún kallaði Juliu óþroskaða og berskjaldaða. Þar að auki taldi hún Juliu ekki heila á geði og sagði hana hafa flúið aftur til Póllands til þess að dvelja hjá föður sínum.

Engar nýjar vísbendingar hafa fundist á máli Madeleine frá því í apríl á síðasta ári þegar þýski kynferðisbrotamaðurinn Christian Brueckner var talinn sakborningur í málinu. Hann afplánar nú dóm fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn börnum og fullorðnum sem áttu sér stað í Portúgal. Þrátt fyrir það hefur hann ekki verið formlega ákærður.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -