Lögreglan í Ohio gerir nú dauðaleit að manni sem er talinn hafa drepið einn og sært fimm aðra í gærkvöldi í vöruhúsi snyrtivörufyrirtækisins KDC/One í New Albany.
Yfirvöld hafa greint frá því að maðurinn sem er grunaður um verknaðinn heitir Bruce Reginald Foster III og hefur lögreglan birt mynd af honum. Hann var starfsmaður snyrtivöruframleiðandans og hafði verið í vinnunni í nokkurn tíma þegar hann skaut samstarfsfólk sitt. Ekki liggur fyrir af hverju hann skaut fólkið en hann flúði vettvang áður en lögreglan mætti á svæðið.
Samkvæmt lögreglustjóra New Albany voru fleiri en 100 starfsmenn á svæðinu þegar skotárásin átti sér stað.
