Folklore, nýja platan sem Taylor Swift gaf út á dögunum öllum að óvörum, hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur. Svo góðar að strax viku eftir útgáfu er platan búin að slá hvert metið af öðru en Folklore fékk meðal annars 80.6 milljón hlustanir á Spotify strax á fyrsta degi sem er meira en nokkur plata tónlistarkonu hefur áður fengið, að því er BBC fullyrðir.
Í Bandaríkjunum seldist Folklore í 846.000 eintökum þessa fyrstu viku og þar með varð Taylor fyrsti bandaríski tónlistarmaðurinn til að selja sjö hljómplötur í meira en 500.000 eintökum á einni viku. Auk þess að vera mest selda platan í Bandaríkjunum síðustu viku var Folklore einnig í toppsæti sölulista í Bretlandi, Finnlandi, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Belgíu og Noregi.
Þrjú lög af plötunni eru nú á topp tíu listanum yfir vinsælustu lögin í Bretlandi og á Írlandi hefur Taylor nú náð þeim áfanga að vera eina tónlistarkona 21. aldarinnar til að eiga fimm plötur sem náð hafa efsta sæti vinsældarlistans og slær þar með bæði Madonnu og Beyoncé við.