Tveir eru sagðir særðir eftir skotárás í verslunarmiðstöðinni Emporia í Malmö í Svíþjóð. Í frétt RÚV um málið kemur fram að mikill viðbúnaður lögreglu sé við bygginguna, svæðið hafi verið girt af og rýming í gangi.
Árásin er sögð yfirstaðin og einn hefur verið handtekinn, drengur fæddur árið 2007. Allar lestarsamgöngur milli Malmö og Kaupmannahafnar hafa verið stöðvaðar, en sú umferðarleið er yfir brúna sem liggur yfir Eyrarsund.
TV4 greinir frá því að árásin hafi átt sér stað í kringum fimmta tímann, á sænskum tíma. Vitni segjast hafa heyrt um tuttugu byssuskot og að fólk hafi flúið í geðshræringu. Á vef TV4 má sjá myndband af vettvangi og viðtal við viðstaddan.