Íbúar í úthverfi Toronto í Kanada urðu vitni að ótrúlegum bílþjófnaði.
Á myndbandi sem náðist af þjófnaðinum sést 18 ára kona hringja dyrabjöllu hjá eiganda Porsche Cayenne 2022 bifreiðar en bílinn hafði verið auglýstur til sölu á bílasíðu. Hún segir við manninn að hún sé að bíða eftir að pabbi sínum og spyr hvort hún megi prufukeyra bílinn. Þegar konan sest við stýrið og eigandinn stekkur út úr bílnum brunar konan í burtu og keyrir í leiðinni yfir eigandann.
Samkvæmt lögreglunni í Toronto var hún ekki ein að verki en á myndbandinu sjást tveir bílar keyra í burtu á sama tíma og þjófnaðurinn átti sér stað og grunar lögreglan þar sé maðkur í mysunni.
Konan gaf sig fram við lögreglu eftir að hafa verið eftirlýst en hún hefur verið ákærð fyrir hina ýmsu glæpi. Eigandi bílsins slasaðist ekki alvarlega en meiddist þó lítillega á höndum og fótum.