Þriðjudagur 16. apríl, 2024
0.1 C
Reykjavik

Ungur maður stunginn til bana á bæjarhátíð

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Morðrannsókn er hafin eftir að maður var stunginn til bana á Notting Hill Carnival í gær. Kemur fram í yfirlýsingu frá lögreglu að henni hafi verið gert viðvart um mann sem hafði verið stunginn í Ladbroke Grove við Westway flugbrautina. Lögregla hafi í kjölfarið drifið sig á vettvang og veitt fórnarlambinu skyndihjálp þar til sjúkraflutningamenn komu. Fórnarlambið, 21 árs gamall karlmaður, var fluttur á sjúkrahús í vesturhluta London þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Lögregla hvetur vitni að gefa sig fram og segir að hundruðir manna hafi verið nálægt staðnum þar sem maðurinn var stunginn. Þá sagði Dr Alison Heydari, lögreglustjóri,  að stjórnendur hátíðarinnar hefðu unnið hörðum höndum til að tryggja öryggi þeirra sem sóttu hátíðina. Hún hafi að mestu leyti farið vel fram fram þar til morðið átti sér stað á síðasta degi hátíðarinnar.  „Hugur okkar er hjá fjölskyldu hins látna sem reynir nú að sætta sig við hræðilegan missi,‘‘ sagði Alison og bætti við að þeirra helstu sérfræðingar væru nú að rannsaka málið.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -