Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Vandræðalegt atvik í 400 metra hlaupi, kostaði Nonino sigurinn: „Gott að þetta var ekki boðhlaup“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ungur ítalskur tugþrautakeppandi lenti í afar vandræðalegu atviki á heimsmeistarakeppni U20 í frjálsum íþróttum í Kólumbíu á dögunum.

Alberto Nonino sem keppti á heimsmeistarakeppni U20 í frjálsum íþróttum í Kólumbíu fyrir nokkrum dögum lent í einstaklega pínlegu atviki í 400 metra hlaupi í tugþrautakeppninni. Til að byrja með gekk honum mjög vel en þegar síga fór á hlaupið byrjaði getnaðarlimur hans að poppa út úr stuttbuxunum hans. Nonino neyddist því til að troða manndómi sínum ítrekað aftur í stuttbuxurnar. Þessi vandræðagangur hægði verulega á Nonino sem endaði í fjórða sæti hlaupsins.

Hefur þessi vandræðagangur Nonino vakið athygli í fjölmiðlum erlendis og margir gert gys að hinum unga og efnilega íþróttamanni. Skrifaði hann færslu um mótið á Instagram þar sem hann þakkar öllum þeim sem studdu hann fyrir mótið og minntist svo eilítið á atvikið:
„Ég get ekki beðið eftir að upplifa aðra eins keppni og þessa og sjá svo kannski aðeins áhugaverðari greinar í blöðunum😂“

Myndband af hlaupinu er orðið ansi vinsælt á YouTube en athugasemdirnar við myndbandið eru á köflum ansi fyndnar. Hér eru dæmi um nokkur þeirra:

„Gott að þetta var ekki boðhlaup, það hefði getað orðið flókið að skipta á keflum.“

„Hann kom fjórði í mark en sigraði samt því limurinn fór fyrstur yfir línuna.“

- Auglýsing -

„Þegar þetta gerðist hjá mér í vinnunni, þá var það glæpur. Skrítið.“

Hér fyrir neðan má sjá hið vandræðalega hlaup.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -