Tíst Theodórs Inga nokkurs hefur slegið í gegn á Twitter í dag. Þar vekur hann athygli á raunum aldraðrar konu sem leitar á náðir Smartlandsins, nánar tiltekið fastan lið þar sem lesendur geta nafnlaust spurt lögmanninn Elínu Sigrúnu Jónsdóttur um ráð. Í bréfi konunnar má sjá að sjaldan launar kálfurinn ofeldið en þar segir:
„Við hjónin erum að flytja úr stóru einbýlishúsi sem við höfum búið í síðastliðin 28 ár. Nú erum við bara tvö eftir en þrjú börn okkar ásamt hluta af barnabörnum bjuggu hjá okkur lengst af. Við erum að fara í mun minni íbúð með ákveðinni þjónustu þar sem við þurfum ekki að sjá um garð eða gera neitt sem við treystum okkur ekki lengur til. Börnin eru ósátt við að æskuheimili þeirra sé selt og ekki er almennilegt samkomulag um hver fær hvað af innbúinu þegar við flytjum. Við erum því með nokkrar spurningar til þín sem okkur þætti vænt um að fá svör við.“
Börnin neita svo að hjálpa foreldrum sínum við að flytja. „Börnin eru upptekin og treysta sér ekki til þess að hjálpa okkur við flutninginn og vinir okkar eru orðnir fótafúnir og geta því ekki aðstoðað,“ lýsir konan. Svona láta börnin þrátt fyrir að þau hjón ætli að gefa þeim „töluvert af verðmætm málverkum og listmunum ásamt húsgögnum sem eru verulega verðmæt en ekki er pláss fyrir í nýrri íbúð.“
Tíst Theodórs er stutt og laggott en hefur nú fengið hundruð læka, sem telst nokkuð gott. „Kæru hjón sem eruð að leita ráða. Börnin ykkar eru frek og löt. Sennilega er það eitt af börnum þessara hjóna sem gat ekki drullast til að halda sig í sóttkví.“
Allir deila þessari skoðun með honum í athugasemdum. „Eitthvað hefur mistekist í uppeldinu. Ég myndi selja dótið og spandera peningunum. Ekki skilja eftir grænan eyri,“ segir Ásdís nokkur. Önnur kona segist fá í hjartað við að lesa þetta:
„Þetta eru svona fullorðin börn sem setja mömmu og pabba sem fyrst á elliheimilið, fá arfinn muuuun fyrr líka eflaust og heimsækja foreldra sína aldrei !! Þvílík framkoma við foreldra sína!! Ojjj, fæ bara í hjartað og væri sjálf til í að hjálpa hjónunum við fluttningaundirbúning!
Einn maður segir svo þessi börn ekki eiga skilið neitt í arf. „Sjaldan launar kálfurinn ofeldið. Og þarna sannast það kýrskýrt. Krakkarnir ykkar eru frekar og latar forréttindaskitur og eiga ekkert gott skilið. Seljið búslóðina í gegnum gallerí og uppboð – og notið aurinn til að chilla á Kanarí!“
Kæru hjón sem eruð að leita ráða. Börnin ykkar eru frek og löt. pic.twitter.com/3YlCh6C9Bq
— Theodór Ingi (@TeddiLeBig) April 18, 2021