Lögfræðingurinn Eva Hauksdóttir hjá HLÍT lögmannsstofu segir um sýknu Arnars Sverrissonar sálfræðings, sem Mannlíf fjallaði um í dag:
„Þetta hlaut að verða niðurstaðan. Lögreglan vísaði kærunni í fyrstu frá enda helbert rugl að nokkuð sem fram kemur í þessum greinum geti flokkast sem hatursorðræða.“
Eva nefnir að „ríkissaksóknari sá ástæðu til að eyða almannafé í lögreglurannsókn, sem er íþyngjandi fyrir blásaklausan mann en þó ekki það högg sem kærandinn ætlaðist til.“
Eva segir einnig að „sá eini sem græðir á þessum vitleysisgangi er verjandi mannsins, sem nú sendir reikninginn til ríkissjóðs.“
Sjálfur var Arnar sálfræðingur eðlilega ánægður með niðurstöðuna:
„Svo virðist sem ríkissaksóknara og þrýstihópi kynskiptinga verði ekki að þeirri ósk sinni að vista mig á Hólmsheiðinni og hafa af mér sektarfé, því mér barst í fyrradag svofellt bréf frá lögreglustjóraembættinu á höfuðborgarsvæðinu.“