Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Færeyskir stjórnarliðar bálreiðir og vilja Samherja burt

Færeyskir stjórnarliðar eru bálreiðir og vilja Samherja, og önnur erlend sjávar­útvegs­fyrirtæki, burt. Viðbrögð þeirra eru tilkomin eftir sjónvarpsþáttinn um meinta skattaskjól­starfsemi Samherja í gegnum Kýpur.

Samherji er sagður hafa misnotað sér skatta­reglur í Færeyjum til þess að komast hjá skatt­greiðslum í Namibíu og víðar. Færeyingar hafa haldið úti svokallaðri alþjóðlegri skipaskrá síðan árið 2005. Það þýðir að hægt er að skrá þar skip sem sigla þó alls ekki frá Færeyjum, nema að nafninu til. Færeysk skatta­yfirvöld hafa formlega hafið rannsókn á mögulegum skatta­lagabrotum Samherja í Færeyjum.

Annika Olsen, þing­kona í Færeyjum.

Annika Olsen, þingkona á Færeyska Lögþinginu, er meðal þeirra stjórnar­liða sem er bálreið eftir seinni hluta þáttarins sem sýndur var í kvöld í færeyska sjón­varpinu. Hún ritaði færslu á Facebook þar sem hún tjáði þessa skoðun sína:

„Útlend­ingar eiga ekki að eiga í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi og stýra okkar afla. Lengri skal þessi saga ekki verða!“
Brandur Sandoy, þing­maður í Færeyjum.

Brandur Sandoy, þingmaður á færeyska Lögþinginu, virðist taka í sama streng og vill hreinsa iðnaðinn af útlendingum. Viðbrögð stjórnarliðianna eru við heimildar­myndinni Teir ómettiligu, sem unnin var í samstarfi við Wikileaks og Kveik.

Í þáttunum er meðal annars fjallað um peninga­tilfærslur frá tveimur namibískum útgerðum Samherja til Samherja­félagsins Tindhólms í Færeyjum árin 2016-2017. Þar er fullyrt að um sé að ræða ólöglega fléttu til að komast hjá því að greiða skatta af launum sjómanna á togurum Samherja í Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra