Þriðjudagur 23. apríl, 2024
11.1 C
Reykjavik

Félag í eigu Atla Helgasonar er gjaldþrota

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Einkahlutafélagið Harpia ehf. var úrskurðað gjaldþrota um miðjan síðasta febrúar. Kemur fram að samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins er eigandi félagsins Atli Helgason lögfræðingur.

Það er DV sem greinir frá því að félagið var stofnað fyrir sjö árum; starfsemi þess var leiga atvinnuhúsnæðis, bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis, pípulagnir sem og uppsetning hitunar- og loftræstikerfa.

Samkvæmt heimildum DV mun rekstur félagsins fyrst og fremst hafa tengst þjónustu Atla við einn skjólstæðinga hans, sem starfar sem iðnaðarmaður.

Atli er lögfræðingur að mennt, en hann hefur þó ekki endurheimt lögmannsréttindi; en sinnt verkefnum tengdum lögmennsku.

Eins og frægt er orðið þá var Atli árið 2001 dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að hafa banað viðskiptafélaga sínum, Einari Erni Birgissyni, í Öskjuhlíð þann 8. nóvember árið 2000.

Atli hlaut uppreist æru árið 2016; hann hefur því óflekkað mannorð í skilningi laganna.

- Auglýsing -

Fyrir fimm árum úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að Atli skyldi fá lögmannsréttindi sín aftur.

Svo fór þó að Landsréttur sneri þeirri ákvörðun við, sama ár.

Atli kærði ákvörðunina til Mannréttindadómstóls Evrópu á grundvelli vanhæfis Landsréttardómara; var kæra Atla hluti af hinu svokallaða Landsréttarmáli.

- Auglýsing -

Ríkið gerði sátt við Atla vegna málsins á síðasta ári.

Kemur fram á DV að skiptastjóri Harpia veitir ekki upplýsingar um gjaldþrot félagsins þar sem svo stutt er liðið frá því.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -