Fimmtudagur 28. mars, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Fentanyl faraldur á Íslandi segir sprautufíkill: „Fentanyl er svakalegasti morðinginn á götunni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sprautufíkill sem Mannlíf ræddi við segir að fentanyl faraldur sé í gangi meðal fíkla á Íslandi í dag. Á síðasta ári hafi þrír ungir menn sem hann þekkti, dáið af völdum ofneyslu á fentanyli en hann útilokar ekki að fleiri hafi dáið af sömu völdum. Fentanyl er lyfseðilsskyld lyf.

Kristján Hafberg Einarsson, 51 árs gamall, er að eigin sögn amfetamínsprautufíkill. Hann er að reyna að ná tökum á fíkninni með hjálp lækna enda fastagestur á bráðamóttökunni vegna sykursýki sem hann greindist með 2008 en amfetamínneyslan hefur skiljanlega gert illt verra. Hann segir að á Íslandi ríki nú fentanyl faraldur. „Ég þekki þrjá unga menn sem fóru með stuttu millibili síðasta sumar og þetta sló mig mjög, ég er nú ekki sjálfur Morfín fíkill en Fentanyl er svakalegasti morðinginn á götunni í dag. Ég þekki nú bara brot af Morfínfíklunum en ég kynntist þessum strákum á Gistiskýlinu og á áfangaheimilum.“

En hvað er fentanyl? Samkvæmt Lyfja.is er um að ræða verkjastillandi lyf sem skylt er Morfíni. Hér er lýsingin í heild sinni:

Fentanyl Acatavis er verkjastillandi lyf. Lyfið er skylt morfíni og hefur sterka verkjastillandi verkun auk slævandi áhrifa. Það er notað við langvinnum verkjum sem eru næmir fyrir morfínlyfjum, svo sem sársauka vegna krabbameins. Lyfið á hins vegar ekki að nota gegn skyndilegum verkjum eða verkjum eftir skurðaðgerðir. Þol getur myndast gegn lyfinu og sífellt stærri skammtar geta orðið nauðsynlegir. Það er þó mjög einstaklingsbundið hversu hratt þolið myndast. Notkun lyfsins fylgir einnig ávanahætta. Í Fentanyl Actavis er virka efnið fentanýl bundið í svokölluðum forðaplástri sem gefur lyfið frá sér jafnt og þétt í gegnum húðina og inn á blóðrásina. Á þann hátt fæst jöfn verkjastilling í þann tíma sem lyfið er notað. Athugið að ef sjúklingur fær sótthita getur meira af lyfinu borist úr plástrinum inn í blóðrásina og þá þarf að fylgjast vel með viðkomandi og jafnvel að minnka lyfjaskammtinn. Plásturssvæðið má helst ekki hitna.

Samkvæmt fyrrverandi yfirlækni Lyfjastofnunar, Kolbeini Guðmundssyni sem var í viðtali við Vísi árið 2016 er fentanyl eitt sterkasta verkjalyfið á Íslandi. „Þetta er eitt sterkasta verkjalyf sem er til á markaðnum. Fentanýl er um það bil hundrað sinnum sterkara en morfín, ef við tökum milligramm fyrir milligramm af lyfi, og sirka fimmtíu sinnum sterkara en heróín meira að segja. Það segir sig sjálf að þetta er mjög öflugt og þar af leiðandi hættulegt lyf,“ sagði hann í viðtalinu.

Kristján Hafberg segir að miðað við það sem hann sér á Telegram, sem er spjallforrit sem mikið er notað af svarta markaðnum en þar er hægt að vera nafnlaus, sé mjög mikið framboð á fentanyli. „Ég veit að það er flutt mikið af oxicontin frá Spáni því læknar þar eru duglegir að skrifa það út og það gæti verið að þetta sé að koma þaðan en ef þessi lyf eru að koma mikið frá íslenskum læknum á dópmarkaðinn er það auðvitað svakalegt hneyksli!“ Segir Kristján að hægt sé að græða heilmikið á að selja morfínskyld lyf á svarta markaðnum „Ég gæti auðveldlega selt lyfin sem ég er á fyrir nokkur hundruð þúsund, þetta er big money.“

- Auglýsing -

Árið 2018 var Svandís Svavarsdóttir, þáverandi heilbrigðisráðherra spurð út í það á Rúv hvort „tilmæli til lækna að vera ekki að ofávísa lyfjum ekki gengið og hvort fylgst væri með því hvaða læknar það séu sem séu að ávísa í of miklum mæli þessum sterku morfínskyldu lyfjum?“ Svandís svaraði: „Þetta er meðal annars verið að skoða og það er alveg ljóst að alveg sama þótt við reynum að halda því fram að við séum að eiga við sambærileg viðfangsefni og í löndunum í kringum okkur, þá er verið að ávísa of miklu af geð-og verkjalyfjum á Íslandi. Við erum kannski hátt í tvöföld á við Norðurlöndin og það er alveg sama hvernig við gruflum í ástæðum þess að verið er að ávísa þeim lyfjum, það getur ekki verið staða sem við viljum vera á, þannig að það þarf að skoða það líka, já.“ Bætti hún því við að dæmi séu til þar sem læknar á Íslandi hafi misst starfsleyfi sitt vegna þess að þeir hafi verið að ávísa lyfjum í óeðlilega miklu magni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -