Þriðjudagur 23. apríl, 2024
11.1 C
Reykjavik

Telur að skimun í Keflavík komi í veg fyrir Spánarferðir Íslendinga

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það er allsendis óljóst hvenær íslensku ferðaskrifstofurnar byrja að bjóða Íslendingum upp á hinar vinsælu sólalandaferðir til Spánar. Bæði Ferðskrifstofa Íslands og Vita hafa auglýst að þeir ætli að hefja leik í júlí en hvergi hafa sést auglýstar dagsetningar. Nýverið auglýstu Heimsferðir ferðir til Tenerife og Krítar í september.

Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vita, staðfestir að ferðaskrifstofan hafi haft fullan hug á að hefja ferðir til Spánar í næsta mánuði en að beðið sé átekta með dagsetningar þar til opnun landamæranna kemur betur í ljóst. „Við stefnum á að byrja ferðir til Tenerife og Alicante í júlí en það verður að liggja betur fyrir hvernig tekið er á móti Íslendingum á Spáni og ekki síst í Keflavík við heimkomu. Þannig að við bíðum með ákvörðun um dagsetningar þar til málin skýrast,“ segir Þráinn.

Aðspurður um hvort skimun farþega á Keflavíkurflugvelli, sem íslensk stjórnvöld hafa boðað, komi til með að hafa áhrif telur Þráinn svo vera. „Ef það er þannig að Íslendingar þurfi að fara í skimun og greiða töluverða fjármuni fyrir, ef til dæmis fjölskylda er að ferðast saman, þá held ég að Íslendingar muni almennt ekki ferðast í miklu mæli fyrr en því tímabili lýkur og ferðafrelsi sé orðið nokkuð óheft.“

Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vita

Íslenskar ferðaskrifstofur hafa verið í miklum vanda í COVID-faraldrinum þar sem fella hefur þurfti niður gífurlegan fjölda ferða og farþegar krafist endurgreiðslna í mörgum tilfellum. Þráinn segir endurgreiðslur hafa gengið vel og sala ferða til Spánar í vetur gangi nokkuð vel, miðað við aðstæður. „Frá því í byrjun apríl höfum við endurgreitt öllum viðskiptavinum sem óskað hafa eftir því. Meirihlutinn hefur samt kosið að færa ferðirnar á aðra dagsetningu eða fengið inneign á aðra ferð. Við höfum verið með ferðir til Tenerife og Kanarí í sölu síðan í mars og gengur salan nokkuð vel og er t.d. jóla- og áramótaferðin til Tenerife löngu uppseld. Einnig settum við í sölu fyrir um mánuði síðan, ferðir til Tenerife og Alicante sumarið 2021.  En við fengum fjölda fyrirspurna frá viðskiptavinum sem áttu ferðir í vor og sumar og vildu færa ferðirnar um ár,“ segir Þráinn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -