Föstudagur 29. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Flugfreyjur og Icelandair undirrita nýjan samning: „Nú fer vonandi að sjást til sólar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hafa undirritað nýjan kjarasamning. Uppsagnir flugfreyja hafa verið teknar til baka.

„Þetta eru búnir að vera mjög erfiðir dagar. Nú fer vonandi að sjást til sólar og við förum að horfa á bjartari tíma,“ sagði Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, FÍÍ, í samtali við RÚV eftir að samninganefnd félagsins og Icelandair undirrituðu nýjan kjarasamning hjá ríkissáttasemjara um tvö leytið í nótt, en FÍÍ hafði óskað eftir fundinum.

Á RÚV segir að á fundinum hafi náðst málamiðlun um aukafrídaga fyrir flugfreyjur eldri en 60 ára og um svokallaða sex daga reglu sem gengur út á það að ekki megi setja flugfreyju á skrá fleiri en sex daga samfellt. Þá er kveðið á samstarf um aukna hagræðingu í nýja samningnum.

Í samtali við mbl.is sagði Bogi að samningurinn væri í takt við það sem fé­lagið stefndi að. „Þetta er mik­il­væg­ur þátt­ur í þess­ari veg­ferð sem við erum í, að koma fé­lag­inu í gegn­um þenn­an storm og klára þetta verk­efni sem við erum í, mjög mik­il­vægt, já,“ sagði Bogi, þegar hann var spurður hvort verið væri að bjarga félaginu með samningnum.

Sagðist Guðlaug Líney vera mjög ánægð með nýja samninginn og bindur hún vonir við að félagsmenn samþykki hann, en samkvæmt RÚV verður hann kynntur félagsmönnum Flugfreyjufélags Íslands á fundi þann 20. júlí. Í kjölfarið verða greidd um hann atkvæði, en atkvæðagreiðslu lýkur 27. júlí. Verði samningurinn samþykktur gildir hann til fimm ára.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -