Fimmtudagur 28. mars, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Fórnarlambi fossblæddi í Grafarvogi – Árásarmenn með barefli á Grafarholti

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Að baki er nótt ofbeldis. Þrjú tilvik komu upp þar sem ofbeldi var beitt. Í Grafarvogi var ráðist á mann sem hlaut af því höfuðáverka. Manninum fossblæddi. Skömmu síðar var tilkynnt um árás á Grafarholti. Fórnarlambið lýsti því að nokkrir menn hefðu ráðist á sig með bareflum.  Þá greip lögregla inn í harðvítuga árás í Grafarvogi seint í gærkvöld. Um var að ræða unglinga. Fórnarllambinu var bent á að fara á slysadeild en árásarmaðurinn var handtekinn.  Árásaraðili handtekinn og vistaður fyrir rannsókn máls.  Báðir voru þeir ólögráða og málið tilkynnt Barnavernd og forráðamönnum.

Drukkinn ökumaður í Kópavogi hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og lagði á flótta þegar hann fékk ljósmerki um að stöðva. Eftir að hafa ekið nokkurn spöl stöðvaði hann og lagði á flótta á hlaupum. Hann verður látinn sæta ábyrgð fyrir að óhlýðnast lögreglu og að aka undir áhrifum.

Í Breiðholti var annar ökumaður stöðvaður um miðja nótt. Sá er grunaður um að hafa verið dópaður.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -