Birgir Ármannsson forseti Alþingis ritar grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag þar sem hann hvetur kjósendur í borginni til að kjósa Kjartan Magnússon í annað sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum næsta vor. Athygli vekur að forseti Alþingis skipti sér þannig að borgarstjórnarkosningum en það ku teljast til tíðinda.
„Kjartan hefur beitt sér fyrir öflugri grunnþjónustu í þágu Reykvíkinga en jafnan lagst gegn útþenslu stjórnkerfisins og ýmiss konar gæluverkefnum,“ segir Birgir meðal annars í grein sinni. Þar fer hann yfir kosti Kjartans og tíundar ástæður þess að fólk ætti að kjósa hann.
„Kjartan hefur alltaf verið trúr þeim grundvallarsjónarmiðum sem sjálfstæðisstefnan er reist á. Hann er talsmaður ábyrgrar fjármálastjórnar og aðhalds í rekstri og hefur jafnan tekið þá afstöðu að borgin eigi að stilla skattheimtu og annarri gjaldtöku í hóf.“
Á öðrum stað í segir Birgir: „Kjartan er hreinskiptinn og ósérhlífinn stjórnmálamaður, sem ávallt er tilbúinn til að leggja góðum málum lið.“
Birgir heldur áfram að mæra Kjartan í greininni og endar svo á þessum orðum:
„Frambjóðendahópurinn í þessu prófkjöri er bæði óvenjufjölmennur og -glæsilegur og gefur það góðar vonir um framhaldið. Ég d sem leiða mun Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum í vor og hvet reykvíska sjálfstæðismenn til að veita honum stuðning í 2. sætið.“