Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid leigja út íbúð sína í fjölbýlishúsi við Hringbraut á 265 þúsund krónur á mánuði. Íbúðin er um 90 fermetrar. Meðalleiguverð á sambærilegu húsnæði er 217 þúsund krónur og því ljóst að forsetin okrar á leigutökum sínum.
Stundin greinir frá þessu í prentútgáfu sinni. Forsetahjónin keyptu íbúðina eftir að Guðni varð forseti samkvæmt svari til Stundarinnar. „Fljótlega eftir að Guðni var kjörinn forseti fluttum við úr húseign okkar á Seltjarnarnesi og leigðum hana út. Í fyrra seldum við hana og um þetta hefur verið fjallað opinberlega. Við nýttum svo hluta söluverðsins til kaupa á íbúð í Reykjavík,“ segir í svarinu.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er harðorð vegna málsins og furðar sig á þvi að hjónin séu þáttakendur í „þessu tryllingslega gróðabraski“.
Mér finnst ótrúlegt að fólk sem er í mestri forréttindaaðstöðu í samfélaginu geti ekki hamið sig af græðgi,“ segir hún við Stundina.
Forsetahjónin segjast hafa leitað til fasteignasölu sem hafi séð um viðskiptin að auglýsa íbúðina til leigu á opnum markaði og leita eftir markaðsverði í þeim efnum. Þau virðast ekki hafa svarað spurning Stundarinnar um hvort þau teldu þetta sanngjarna leigu.