Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Fuck ofbeldi vettlingarnir styðja við hinsegin: „Einstök herferð á heimsvísu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

UN Women á Íslandi hefur sölu á FO vettlingum í dag, föstudaginn 2. september. Þetta er í áttunda sinn sem UN Women fer af stað í FO herferð, nú í samstarfi við Sjóvá. FO herferðin er flaggskip UN Women á Íslandi og hafa safnast um 80 milljónir á þessum árum sem runnið hafa í að uppræta kynbundið ofbeldi á heimsvísu. Í ár verður varningurinn til styrktar hinsegin verkefnum UN Women um allan heim.

UN Women er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst fyrir réttindum og málefnum hinsegin fólks um allan heim, enda verður jafnrétti ekki náð nema með jöfnum réttindum allra hópa. Mikið bakslag hefur orðið í réttindabaráttu hinsegin fólks á síðustu árum, þ.m.t. innan Sameinuðu þjóðanna, þar sem aðildaríki takast á um þessi málefni. Víða býr hinsegin fólk við gríðarlega mismunun, skert réttindi og ofbeldi sökum kyns og kynhneigðar. Það er því gríðarlega mikilvægt að UN Women standi áfram vörð um velferð og réttindi hinsegin fólks á tímum sem þessum.

FO vettlingarnir endurlífga fjársveltan málaflokk

FO varningurinn í ár eru vettlingar sem hannaðir eru af Védísi Jónsdóttur, prjónahönnuði, og framleiddir af Varma. Vettlingarnir kosta 4.900 krónur, eru úr 100% merínó ull og koma í tveimur stærðum (S/M og M/L). Hægt er að kaupa vettlingana á heimasíðu samtakanna, unwomen.is (https://gjafaverslun.unwomen.is/product/fo-vettlingarnir). Védís lagði mikið upp úr því að engin hlið á vettlingunum væri eins. Enda táknar það fjölbreytileikann sem herferðin styður við.

Hinsegin verkefni UN Women hafa verið án fjármagns síðan í maí á þessu ári og því er fjárstuðningurinn sem hlýst af sölu vettlinganna gríðarlega mikilvægur. Enda verður lítið aðhafst með tómum sjóði.

97% líklegra til að verða fyrir ofbeldi

- Auglýsing -

Meðal hinsegin verkefna UN Women er þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í Líberíu svo þau geti veitt hinsegin fólki viðunandi þjónustu, rekstur menningaseturs fyrir konur og hinsegin fólk í Líbanon og fjölþætt verkefni í Georgíu sem miðar að því að uppræta ofbeldi gegn hinsegin fólki.

  • 2 milljarðar fólks býr í ríkjum þar sem hinseginleiki er álitinn glæpur
  • 84% ríkja heims banna samkynja hjónabönd og viðurkenna ekki tilvist þeirra. Það er því yfirgnæfandi meirihluti landa í heiminum sem banna þau en heimila. Mikið bakslag hefur átt sér stað til dæmis í Bandaríkjunum og víða í Evrópu þar sem árangur hafði áður náðst og því standa þessi réttindi víða höllum fæti.
  • Hinsegin fólk er 97% líklegra til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi en þau sem ekki skilgreina sig sem hinsegin.
  • Hinsegin fólk er handtekið og sett í fangelsi fyrir að vera það sjálft. Í sumum löndum varðar það dauðarefsingu, í öðrum er grófum pyntingum og ómannúðlegri meðferð beitt.. Refsingin er mismikil. Í Úganda, Súdan, Zambíu og Gambíu svo dæmi séu tekin, varðar það lífstíðarfangelsi, í Afghanistan er hægt að dæma fólk til dauða, í Pakistan og Brunei er fólk steinað til dauða fyrir að vera hinsegin, í öðrum löndum tíðkast refsingar á borð við hýðingar, sektir eða opinber smánun.
  • Í 6 löndum ríkir dauðarefsing við samkynhneigð og samböndum fólks af sama kyni
  • Aðeins 37 ríki heims veita hinsegin fólki alþjóðlega vernd/hæli á grundvelli ofsókna vegna kynvitundar/kynhneigðar

Einstök herferð á heimsvísu

UN Women á Íslandi fékk 40 hinsegin einstaklinga til að sitja fyrir á öllu FO herferðarefninu í ár og eru þau andlit herferðarinnar. Þátttaka þeirra er táknræn þar sem þau leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á því bakslagi sem orðið hefur á heimsvísu, þar með talið á Íslandi og styðja þannig við þessa mikilvægu og sögulegu söfnun.

- Auglýsing -

Þetta er í fyrsta sinn sem landsnefnd UNW (þær eru tólf á heimsvísu) safnar í hinseginsjóð UN Women sem er hér um bil alveg tómur. Íslenska landsnefndin ætlar að ríða á vaðið og setja málefni hinsegin fólks á dagskrá hjá UN Women, enda er um að ræða einn viðkvæmasta- og jaðarsettasta hópinn á heimsvísu. Ljósmyndir tók Anna Maggý, sem hefur nú myndað FO herferð UN Women á Íslandi þrjú ár í röð.

Fögnuður og frumsýning varnings á Húrra í dag kl 17:00

Nýrri vöru og herferð verður fagnað á skemmtistaðnum Húrra við Tryggvagötu 22 á milli klukkan 17:00- 19:00 í dag, föstudaginn 2. september. Þar verður hægt að næla sér í vettlinga og styrkja um leið afar mikilvægt og aðkallandi málefni. Fram koma DJ Dóra Júlía, Una Torfadóttir, Systur og dragdrottning Íslands, Lady Zadude. Siggi Gunnars verður svo veislustjóri viðburðarins. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -