Þessar fallegu stúlkur á Hólmavík eru gull í gegn. Þegar Mannlíf átti leið um þorpið í gær voru þær með tombólu utan við þorpsverslunina. Þær létu nepjuna ekkert á sig fá. Enda málstaðurinn mikilvægur, þær voru að safna fyrir Rauða krossinn. Þær sögðu nokkuð líf vera í starfi Rauða krossins á Hólmavík og vildu leggja sitt af mörkum til að halda starfinu á lofti.
Það vekur von og trú á óvissa framtíð að enn skuli vera að alast upp fólk á Íslandi með hjartað á réttum stað.
Þeir þorpsbúar sem Mannlíf hitti á vettvangi lýstu ánægju og aðdáun á þeim stúlkum. Þær töldu þó að fólk mætti vera með budduna örlítið betur opna í þágu málstaðarins.
Þær Birna Dröfn, Guðrún Ösp og Álfrún Áslaug eru glæsilegir fulltrúar fagurrar hugsunar, hjálpsemi og væntumþykju.
Höfundur texta og mynd: Guðmundur Sigurðsson