Edda Sif Pálsdóttir, dóttir Páls Magnússonar fyrrverandi útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, og Vilhjálmur Siggeirsson, eru nú trúlofuð, en parið greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í dag; birti parið ástfangna fallega mynd af sér saman.
Edda Sif er íþróttafréttakona á RÚV sem og dagskrárgerðarkona í Landanum, en þar er einmitt áðurnefndur Vilhjálmur tökumaður.
Edda Sif og Vilhjálmur eiga saman soninn Magnús Berg, sem er rúmlega tveggja ára gamall.
Það var Vilhjálmur sem greindi frá tíðindunum góðu í færslu á Facebook-síðu sinni:
„Hún sagði já!“
Edda Sif og Vilhjálmur hafa þekkst lengi; voru bestu vinir um langt árabil áður en þau byrjuðu að stinga saman nefjum. Þau mættu eitt sinn saman í hlaðvarpsþátt, í fyrra, sem ber heitið Betri helmingurinn með Ása.
Þar sagði Edda Sif meðal annars þetta um breytingu á vináttu í ást og sambúð:
„Ég var hrædd við það fyrst. Þetta er auðvitað hræðileg hugmynd að byrja með besta vini sínum og samstarfsmanni. Engin heilvita manneskja gerir það.“
En hún gerði það samt, og sér alveg örugglega ekki eftir því. Og alls ekki Vilhjálmur.