Í Facebook hópnum 108 RVK Hverfagrúbba segir Birna nokkur frá einkennilegu hljóði sem hún heyri reglulega en hún býr mjög nálægt Grímsbæ.
„Áður en ég tapa vitinu…“ Þannig byrjar færsla Birnu og svo heldur hún áfram. „Eru fleiri hér sem búa mjög nálægt Grímsbæ og heyra oft einhvers konar gól/öskur/falskan söng mjög seint á kvöldin? Ég heyri þetta oftar en einu sinni í viku og hef gert lengi. Ég get því miður ekki sagt úr hvaða átt þetta kemur en mér finnst ólíklegt að þetta komi úr einhverri íbúð í blokkinni. Gæti frekar trúað að þetta hljóð komi utan frá. En hrikalega er þetta þreytandi!“
Viðbrögðin eru frekar dræm, miðað við dramatíska undirtóna færslunnar. Guðrún Lilja segist búa við hliðina á Grímsbæ en heyri ekki neitt.
Jay vill meina að Birna sé búin að missa glóruna og vitnar í texta Todmobile.
syngja samtaka allar saman.“
Hanna Sif leysti mögulega ráðgátuna með sinni athugasemd.
„Ég er í gerðunum en ég heyri þetta allavega einu sinni í mánuði… alltaf sami kallinn þannig ég held hann býr í hverfinu.“
Þetta mál minnir óneitanlega á dularfulla draugahljóðið á Akureyri í fyrra. Nú er bara spurning hvort Domino´s Pizza eigni sér ólætin í næstu auglýsingu líkt og fyrirtækið gerði í fyrra.