Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðar skammar Sigurð Inga: Vestfirðingar sviknir um Dynjandisheiði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það væri synd að segja að maður missi hökuna í gólfið í hvert skipti sem ráðherra veldur manni vonbrigðum,“ segir Guðmundur Gunnarsson fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og núverandi oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi um þá ákvörðun að skera niður fjárframlög til framkvæmda á Dynjandisheiði. Þetta kallar hann svik.

„Eins og nú þegar þær fréttir berast af því að framkvæmdum á Dynjandisheiði hafi enn eina ferðina verið slegið á frest. Vegna fjárskorts.“

Guðmundur segir að það „sannar enn og aftur að það má ekki missa augun af þessu fólki sem segist skilja og viðurkenna að Vestfirðir hafi velkst um í sáru svelti alltof lengi. Flagga fögrum loforðum og yfirbót sem reynist svo lítið annað en heitt loft.“

Fyrrum bæjarstjóranum finnst “merkilegt hvað þessi blessaði ríkiskassi virðist alltaf grunsamlega tómur þegar kemur að því að umbreyta djúpsárum skilningi í aðgerðir. Því lengra sem baukurinn ferðast frá fjármálaráðuneytinu því hærra glymur í honum tómahljóðið. Merkilegur fjandi.“

Guðmundur segir að svo sem sé ekki við miklu að búast „þegar við getum ekki einu sinni klárað löngu fjármögnuð ofanflóðaverkefni til að verja þorpin fyrr en einhverjum áratugum of seint; vegna sofandaháttar. Þessi vanvirðing við öryggi fólks og þessi síendurteknu svik við æðakerfi samfélaganna er auðvitað til háborinnar skammar.“

Hann segir að „vísast á maður ekki að vera að kvabba þetta. Þakka frekar fyrir vegstubbana sem þó er verið að tjasla saman á kjálkanum. Stubbum, sem hampað er sem nýframkvæmdum, en eru í reynd tilfærsla á fé sem annars ætti að fara í viðhald á svæðinu og verður til þess að aðrir lúnir vegir um fjölfarna ferðamannastaði drabbast ofan í foraðið á sér. Það er öll innspýtingin.; viðspyrnan; bragabótin.“

- Auglýsing -

Guðmundur telur að „það getur ekki verið að ég sé einn um að vera orðinn þreyttur á rykinu sem þyrlast upp undan lakkskóm þessara loforða,“ og beinir orðum sínum til samgöngu- og og sveitarstjórnarráðherra Sigurðar Inga Jóhannssonar, og fjármálar- og  efnahagsráðherra Bjarna Benediktssonar:

„Já, ég er að horfa á þig kæri samgönguráðherra. Og já, ég er að horfa á þig kæri fjármálaráðherra. Þið eruð góðir menn og ég vil trúa því að þið meinið vel. Ég verð samt að biðja ykkur um eitt. Næst þegar þið birtist í ofboði með tárvot hvolpaaugu eftir hamfarir, segið okkur þá bara eins og er. Að ykkur finnist svæðið ekki nægilega mikilvægt til að halda úti grunnkerfum. Eða að þið gefið því ekki gaum að íbúar fjórðungsins eigi rétt á lágmarks þjónustu“ og bætir við að „þið sóið tíma fólks með því að fylla verðmætt vestfirskt fjallaloft af innantómum loforðum. Þetta er komið gott. Ef þið getið ekki sagt satt og staðið við stóru orðin, sleppið því þá frekar að koma“.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -