Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

„Fyrsti kostur Katrínar Jakobsdóttur er að vinna með hægriflokki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Það er eins og VG hafi ákveðið að bjóða ekki fram sem sjálfstæður stjórnmálaflokkur í þessum Alþingiskosningum heldur sem einhvers konar fylgitungl hinna stjórnarflokkanna,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson frambjóðandi Samfylkingarinnar, og bætir við:
„VG og Sjálfstæðisflokkur nota sömu frasana á landsfundum og virðast hafa samstillt málflutning sinn í stórum málum. VG lagði fram kosningastefnu sem er augljóslega klæðskerasniðin að áframhaldandi stjórnarsamstarfi, Katrín Jakobsdóttir leggst gegn stóreignaskatti og hjá flokksforystunni virðist – ef til dæmis litið er á svör VG við spurningum Landverndar – gæta ákveðinnar tregðu til að taka alvöru skref í loftslagsmálum á næsta kjörtímabili.“
Jóhann Páll.
Jóhann Páll segir síðan að „í gær kom svo þetta frá Bjarkeyju þingflokksformanni: nokkurs konar yfirlýsing um að VG kasti inn handklæðinu ef kosningarnar fara þannig að félagshyggjustjórn verði raunhæfur möguleiki.“
Heldur áfram:
„Katrín Jakobsdóttir hefur sagt að ef ríkisstjórnin haldi muni strax hefjast viðræður milli núverandi stjórnarflokka um framhald stjórnarsamstarfsins. Það er þannig hennar fyrsti kostur, að vinna með hægriflokki.
Þingflokksformaður VG gekk lengra í Facebook-færslu sinni og er beinlínis á móti því að flokkurinn vinni í ríkisstjórn með vinstri- og miðjuflokkum ef þeim gengur betur í kosningunum en VG. Gott hjá Bjarkeyju að eyða færslunni. Vonandi finnur VG aftur sjálfstraustið og kemur til baka á vinstrivænginn.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -