Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Gary Martin rekinn frá ÍBV og kærður vegna birtingar nektarmyndar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Enski fótboltamaðurinn Gary Martin, var í morgun rekinn frá knattspyrnuliði ÍBV. Ástæða brottrekstrarins ku vera sú að fyrrum liðsfélagi hans hjá ÍBV hefur kært hann til lögreglu fyrir að birta mynd af sér fáklæddum.

Gary viðurkennir myndsendinguna, en segist hafa ætlað að vera fyndinn. Hann hafi sent mynd af liðsfélaganum þegar hann var nýkominn úr sturtu á lokaðan hóp leikmanna ÍBV á Snapchat.

Þá segir Gary að hann og lögmaður hans hafi reynt að leita sátta í málinu, án árangurs.

Gary er gert að yfirgefa íbúð sína í Vestmannaeyjum, sem er á vegum ÍBV, eigi síðar en 1. maí.

Gary Martin sendi DV yfirlýsingu sína vegna  málsins sem lesa má hér að neðan.

Ég hef lagt mig 100% fram fyrir félagið frá því ég kom og ávallt gert mitt besta. Það var gagnkvæm ánægja með samstarfið og m.a. þess vegna framlengdum við samningi mínum til ársloka 2022.

- Auglýsing -

Við erum 15-20 leikmenn með lokaða spjallrás þar sem við sendum Snapchat, myndir og skilaboð milli okkar. Oftar en ekki hef ég fengið minn skammt af stríðni og myndum og tekið því misvel eins og gengur. Í síðustu viku tók ég mynd inni í klefa eftir sigurleik af leikmanni nýkomnum úr sturtu og sendi með athugasemd sem átti að vera fyndin. Þó að mörgum þætti sendingin fyndin þá þótt leikmanninum sem myndin var af það ekki. Hann kærði mig til lögreglunnar og kvartaði til félagsins sem bregst við með þeim hætti sem fréttatilkynning þeirra sýnir.

Ég hef margoft reynt að ná til leikmannsins en hann vill ekki hitta mig. Hef ég sent honum skilaboð þar sem ég bið hann auðmjúklega afsökunar á því að hafa sært hann en hann svarar ekki. Ég hef farið heim til hans en hann vildi ekki tala við mig.
Þetta er ekki fyrsta myndin á spjallrás okkar sem sýnir einhvern beran. Það hefur t.a.m. komið mynd þar af mér allsberum í vetur sem ég gerði engar athugasemdir við. Þetta og fleira eru margir leikmenn tilbúnir að staðfesta. En ég virði skoðanir leikmannsins og var alls ekki að reyna að særa hann. Ég var að reyna að vera fyndinn. Og nú er búið að kæra mig til lögreglunnar og rifta samningi mínum við ÍBV sem þýðir að ég er atvinnulaus. Mér er gert að yfirgefa íbúðina mína 1 maí sem er eftir 3 daga.

Bæði ég og lögmaður minn erum búnir að reyna að sætta þetta mál en án árangurs. Hann hefur sagt mér að það sé líklega best fyrir alla aðila að leysa þetta mál hjá lögreglu með sáttameðferð því það sé þungt fyrir alla ef þetta fer fyrir dóm. En stjórn ÍBV hefur hafnað sáttum og ég þarf því líklega að sækja minn rétt gagnvart ÍBV og verja mig hjá lögreglu.
Ég vil að lokum þakka öllu fólkinu hér í eyjum fyrir frábæran tíma og viðkynningu. Einnig þjálfurum, leikmönnum og forsvarsmönnum ÍBV sem ég óska alls hins besta í framtíðinni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -