Miðvikudagur 27. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Geimfaraþjálfun í Stefánshelli: „CHILL-ICE hefur vakið athygli um allan heim“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rannsóknarhópurinn Chill-ICE á vegum ICEE Space (áður EuroMoonMars) hefur nú lokið geimfaraþjálfun í Stefánshelli í samstarfi við Space Iceland. Verk­efnið er hluti af hí­býla­hönnun fyrir tunglið og Mars, en Ís­land þykir heppi­legur staður fyrir til­raunina því hér er að finna helli sem á að svipa til þeirra sem eru á tunglinu.

Vegna hættu á að verða fyrir loft­steinum og vegna mikillar geislunar er ekki talið ráðlegt að vera á yfir­borði tunglsins í lengri tíma, því gætu hellar á tunglinu og Mars verið á­kjósan­legri fyrir hí­býli og rann­sóknar­stöðvar.

Samkvæmt Atla Þór Fanndal, framkvæmdastjóra Space Iceland er þetta í þriðja sinn sem hópurinn kemur hingað til lands í samstarfi við Space Iceland, en árið 2020 kom hópurinn til Íslands í forathugun og fyrsta stig rannsókna fór fram í fyrra sumar.

 „CHILL-ICE II sem fór fram nú í ágúst er ítarlegri rannsókn en í fyrra þar sem gerð er tilraun til að þjálfa lengri veru á Tunglinu eða Mars þar sem geimfararnir gera meira en aðeins að lifa af. Chill-ICE I, sem fór fram 2021, var þannig herming á fyrstu klukkustundum og dögum geimfara en CHILL-ICE II skoðar dagana og vikurnar eftir að híbýli er risið og geimfararnir þurfa að sinna sínum daglegu störfum,“ segir Atli.

- Auglýsing -

Hópurinn saman stendur af rannsakendum frá Hollandi, Póllandi, Bretlandi, Indlandi, Ítalú, Ástralíu, Bandaríkjunum og Spáni. Bakvið CHILL-ICE verkefnið er fyrirtækið ICEE SPACE, frumkvöðlafyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknun, þróun og tilraunum fyrir áframhaldandi könnun mannkyns á geimnum.

Í samtali við Atla Þór Fanndal, framkvæmdastjóra Space Iceland, segir hann að aðkoma Space Iceland sé fyrst og fremst stuðningur og ráðgjöf líkt og stendur öllum vísindahópum, fyrirtækjum og stofnunum með tengsl við vaxandi geimiðnað til boða. Atli er mjög ánægður með leiðangurinn og segir: „Space Iceland óskar ICEE SPACE til hamingju með velheppnaðan rannsóknarleiðangur til Íslands. Það er, eins og alltaf, mikill heiður fyrir Space Iceland að koma að verkefnum sem þessum. Space Iceland var stofnað með þann eina tilgang að ýta undir þátttöku Íslands í geimvísindum og auka tæknitilfærslu geimvísinda- og tækni hér á landi. CHILL-ICE hefur vakið athygli um allan heim. Þar á meðal á Lunar and Planetary Science Conference 2021.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -