Covid-sjúklingur missti stjórn á sér í sóttvarnahúsi. Maðurinn var í mjög annarlegu ástandi og réðst á fólk auk þess að valda skemmdum. Lögregla handtók hann og læsti inni í fangaklefa, þar sem hann er nú og býður þess að svara til saka. Maðurinn hafði auk þess gerst brotlegur á sóttvarnarlögum, en er hann er með staðfest Covid smit.
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir af lögreglu í gærkvöldi og í nótt en höfðu þeir ýmist gerst brotlegir á umferðarlögum og/eða verið grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Þá var maður handtekinn í miðborg Reykjavíkur en greip lögregla gerandann við innbrot í skóla á svæðinu. Maðurinn gisti í fangaklefa í kjölfarið.
Í Kópavogi hafði lögregla hendur í hári manns, en sá hafði rænt ökutæki. Lögregla fór með manninn í fangaklefa.