Að mati Persónuverndar telst tæknirisinn Google ekki hafa ekki gerst brotlegur er hann hafnaði beiðni þekkts Íslendings um að fjarlægðar yrðu leitarniðurstöður þar sem fjallað er um meint einelti hans á vinnustaðnum.
Að mati Persónuverndar vegur réttur almennings til upplýsingar þyngra en einkalífshagsmunir þess sem kvartar.
Í áðurnefndum úrskurði Persónuverndar kemur fram að horft sé til atvinnu kvartanda og hlutverki hans í þjóðlífinu; niðurstaðan varð sú að réttur almennings til upplýsingafrelsis myndi víkja til hliðar rétti kvartanda til að gleymast.
Ekki kemur fram hvað einstaklingurinn starfar eða hver hann sé.
Úrskurðurinn var ekki birtur í heild sinni á heimasíðu Persónuverndar; vegna þess að þar koma fram nákvæmar upplýsingar um þann er kvartar.
Niðurstaða Persónuverndar varð sú að hagsmunir almennings af því að hafa aðgang að hlutaðeigandi upplýsingum yrðu taldir vega þyngra en einkalífshagsmunir kvartanda. Var vinnsla Google á persónuupplýsingum um kvartanda ekki talin brjóta í bága við lög.