Föstudagur 19. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Gosstöðvar opna á hádegi – Gasmengun á Vatnsleysuströnd

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Í dag verður gossvæðið vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12:00 til kl. 24:00. Lokað verður inn á svæðið kl. 21. Rýming hefst kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti“, segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum.

„Í fyrradag opnaðist ný gossprunga á milli þeirra sem opnuðust 5. apríl og á miðnætti þann 7. apríl sl. og rennur hraun frá nýju sprungunni niður í Geldingadali“.

Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn á Suðurðnesum, segir í viðtali við mbl að viðbragðsaðilar hafi áhyggjur af gasmeng­un á svæðinu. „Það sem við ótt­umst er þessi leyndi hluti gaseitr­un­ar. Það sem er að ger­ast er að fólk er að fá ein­kenni sem við vit­um ekki af fyrr en eft­ir á.“

Bjarney seg­ir að kallað hafi verið eft­ir því við land­læknisembættið að skýra bet­ur hvaða ein­kenn­um gaseitr­un­ar fólk eigi að horfa eft­ir. Hún seg­ir lög­regluþjóna ít­rekað vara við gasmeng­un en fólk virðist ekki taka því al­var­lega.

Samkvæmt veðurspá er suðaaustan og sunnan vindur á gossvæði og snjókoma með köflum. Hiti er viðfrostmark. Áttin er þó suðvestlægari rétt ofan við jörð og búast má við gasmengun á norðanverðum Reykjanesskaga og á höfuðborgarsvæðinu. Sunnan 5-10 m/s og slydda eða rigning með morgninum, en suðaustan 8-13 eftir hádegi. Hiti 2 til 5 stig.

„Gasmengunina ætti að leggja yfir Vatnsleysuströnd í fyrstu, en seinnipartinn yfir svæðið frá Vogum að Reykjanesbæ og vestur að Höfnum. Snýst í austan og norðaustan 5-10 og styttir upp í kvöld, en mengunin berst þá í átt til Grindavíkur.

- Auglýsing -

Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir kl. 12 í dag hafi það í huga að takmarkað eftirlit viðbragðsaðila er á svæðinu. Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Þá hefur gönguleið reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Hættusvæði við gosstöðvarnar hefur verið merkt inn á kort sem hægt er að nálgast á Facebook síðu lögreglu og á heimasíðu Veðurstofu Íslands„.

Lögregla bendir á að svæði sé ekki fyrir lítið börn, þau séu viðkvæm og nær jörðinni en þau sem eldri eru því útsett fyrir skaðlegum lofttegundum. Þeir sem klæði sig ekki vel hafi ekkert inn á svæðið að gera.

„Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.

- Auglýsing -
  • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
  • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
  • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
  • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.

Tekið er fram að áætlun geti breyst án fyrirvara.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -