Guðjón nokkur er miður sín eftir skemmdarverk sem unnin voru á strætisvagni sem hann fékk far með um helgina. Þar var búið að skera á sæti og belti svo töluvert sá á vagninum.
Guðjón segir frá reynslu sinni inn í hverfishópi íbúar Mosfellsbæjar. Þar skrifar hann:
„Svona var umgengi um nýja landsbyggðarstrætó um helgina töluverðar skemdir gerðar à sætum í honum meðan hann var à keyrslu à leið 57 af vissum farþegum. Mikið á fólk mikið bágt sem gerir svona skemmdarverk og þetta er tjón upp á nokkur hundruð þúsund kr. Best væri að finna þessa skemmdarvarga og láta þá greiða fyrir þetta viðgerðakostnað.“
Helga er líka miður sín. Ljòtt að sjà. „Vonandi næst i skemmdarvargana,“ segir Helga. Sigurður nokkur er heldur ekki hrifinn af skemmdarvörgunum. „Aumingjar með hor,“ segir Sigurður.
Sigrún telur sig vita hverjir þetta voru. „Var vör við unglingahóp sem var inni á KFC Mosó með stykki sem er notað til þess að skera belti/brjóta rúðu. Þeir flýttu sér út þegar ég fór að skipta mér af þeim að krota inná baði. Stefndu að strætóskýlinu stuttu seinna og gætu því mögulega verið þessir skemndavargar,“ segir Sigrún.