Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Sigríði slátrað en Guðlaugur efstur í fyrstu tölum – Spennan magnast

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðlaugur Þór Þórðarson er efstur í prófkjöri Sjálfstæðiflokksins í Reykjavík samkvæmt fyrstu tölum. Þó á eftir að telja  töluvert af atkvæðum og ómögulegt að segja á þessu stigi hvernig úrslit muni ráðast.

Athygli vekur lélegt gengi Sigríðar Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem vermir áttunda sætið samkvæmt fyrstu tölum.

Talin hafa verið 1.502 atkvæði og er Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra efstur með 765 atkvæði.

Í öðru sæti er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra með 1.001 atkvæði í 1. – 2. sæti.

Í þriðja sæti er Diljá Mist Einarsdóttir með 601 atkvæði samanlagt í 1. – 3. sæti.

Í fjórða sæti er Brynjar Níelsson með 573 atkvæði samanlagt í 1. – 4. sæti.

- Auglýsing -

Í fimmta sæti er Hildur Sverrisdóttir með 753 atkvæði samanlagt í 1. – 5. sæti.

Í sjötta sæti er Birgir Ármannsson með 885 atkvæði samanlagt í 1. – 6. sæti.

Í sjöunda sæti er Kjartan Magnússon með 777 atkvæði samanlagt í 1. – 7. sæti.

- Auglýsing -

Í áttunda sæti er Sigríður Á. Andersen með 675 atkvæði samanlagt í 1. – 8. sæti.

Um 7.500 manns greiddu atkvæði í dag en endanlegar tölur munu liggja fyrir þegar allar kjördeildir hafa verið gerðar upp. Fyrstu atkvæðin sem talin voru eru atkvæði sem greidd voru utan kjörfundar ásamt atkvæðum sem greidd voru í gær.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -