Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Guðmundur Ingi fokillur vegna slóðaskapar ríkisstjórnarinnar: „Börnin gráta sárt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Fólk er lokað inni matar- og peningalaust,” segir Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólkins.

Hann er harðorður í garð þess sem hann kallar slóðaskap ríkisstjórnarinnar í Covid-19 faraldrindum.

„Við erum að ræða hér sótt­varn­ir og því miður, ég verð bara að segja það: Klúður, klúður klúður. Því miður klúðraðist þetta. Við hefðum getað haft það svo gott,“ sagði Guðmund­ur Ingi meðal ann­ars.

„Fermingarbörn gráta því þau missa af fermingarveislunni. Börn sem eru nú að missa af afmæli sínu í annað sinn gráta einnig sárt.“

Það er þungt hljóðið í Guðmundi.

„Breska afbrigði hennar var boðið velkomið inn og það hringdi engum viðvörunarbjöllum og engin rauð ljós kviknuðu þegar erlendir túristar voru að koma til landsins í þriggja til fjögurra daga ferðir og áttu að vera í fimm daga í sóttkví.”

- Auglýsing -

Hann segir eftirlit lítið sem ekkert og tekjutap mikið.  „Verkamenn komnir til landsins brjóta sóttkví og fara beint í vinnu. Enginn að fylgjast með því. Veisluþjónustan sem var komin á skrið og sá fram á bjartari tíma varð að skella í lás og svo allir hinir sem nú sjá fram á gríðarlegt tekjutap vegna klúðurs á landamærum sem vel hefði verið hægt að koma í veg fyrir.

Enn og aftur verða þau sem nauðsynlega þurfa á líkamsrækt, sundi og heitum pottum að halda sér til endurhæfingar að missa þá nauðsynlega þjónustu. Það er vegna þess að ríkisstjórnin beitti ekki þeim lögum og reglum sem hún hefur til þess að gera allt sem í hennar valdi til að stöðva það að hið bráðsmitandi breska veiruafbrigði léki lausum hala í samfélagi okkar.“

Guðmundur telur að ríkisstjórnin horfi frekar til erlendra túrista en þeirra sem minna mega sín í samfélaginu og segir að enn og aftur sé fólk með undirliggjandi sjúkdóma lokað inni, jafnvel peninga- og matarlaust, og hafi ekki efni á að panta mat eða aðrar nauðsynjar á netinu eða fá sent heim.

- Auglýsing -

„Á sama tíma er ríkisstjórnin að borga fyrir erlenda túrista í sóttkví, sem er fáránlegt, þegar hún segist hafa ekki hafa fjármagn til að hjálpa þeim fáu, eins og hæstv. fjármálaráðherra segir að séu í ömurlegum aðstæðum. Hvar á að finna fjármagn til að hjálpa þeim verst settu sem eru í ömurlegum aðstæðum í boði hans og ríkisstjórnarinnar, en á sama tíma vantar ekki fjármagn í allt annað,“ segir Guðmundur Ingi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -