Fimmtudagur 28. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Guðrún hágrét eftir Bónusferð: „Svo brosti hún bara og keyrði í burtu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðrúnu Brynjólfsdóttur brá heldur betur í brún í súðustu verslunarferð hennar í Bónus þar sem hún upplifði svo sannalega góðvilja náungans. Eftir búðarferðina sat hún út í bíl hágrátandi.

Frá reynslu sinni segir Guðrún í færslu á Facebook þar sem hún biður alla að deila boðskapnum. Ástæðan er sú að hana langar til að konan sem var henni svo góð í búðinni sjái þakkir sínar. „Hvað hef ég gert til að eiga þetta skilið?“ Ég sat úti í bíl seinnipartinn í dag eftir eina búðarferðina í Bónus, hágrátandi og gat ekki hætt. Ástæðan var ekki sú að ég væri sorgmædd eða óhress, heldur ég hafði upplifað góðverk sem kom heldur betur flatt upp á mig,“ segir Guðrún.

Guðrún lýsir innkaupaferðinni með eftirfarandi hætti. „Ég var að versla og það var ung kona á undan mér. Hún var ekki að kaupa neina matvöru, heldur gjafabréf og bauð mér að vera á undan sér á meðan hún beið eftir þjónustu. Ég þáði það, og renndi vörunum mínum í gegn, nema ég gleymi smotterý og fæ að hlaupa inn í búð að sækja það. Þegar ég kem til baka er verið að afgreiða ungu konuna og vörurnar mínar biðu skannaðar við endann á afgreiðsluborðinu fyrir utan það sem ég hafði gleymt inni í búð sem átti eftir að skanna.
Ég beið því bara og bað svo unga manninn að bæta þessu við það sem ég átti eftir að borga,“ segir Guðrún og varð heldur betur hissa þegar afgreiðslumaður búðarinnar svaraði henni:
„Nei, það er búið að borga matinn – konan á undan þér ákvað að borga þetta líka“
HA! Ó jeminn, hún hefur óvart verið rukkuð fyrir minn part – segi ég í geðshræringu og fannst það skelfilegt að ókunnug kona hefði verið rukkuð fyrir matinn minn. „Nei, hún sagði að hún ætlaði að borga þetta“ segir ungi drengurinn á kassanum.“
Guðrún tók þessa mynd af sér grátandi inn í bíl eftir góðverkið.

Guðrún segist þessu næst hafa rokið út til að leita að konunni sem hafði greitt fyrir matvörur hennar. Í myrkrinu var hún miður sín að finna ekki konuna strax. „En svo kemur hún keyrandi – ég veifa henni og bið hana að stoppa – segi við hana „heyrðu elskuleg, ég held að þú hafir verið rukkuð fyrir matinn minn, ég vill fá að borga þér“ – Nei alls ekki, segir hún. Ég ætlaði að borga þetta. „Nú? segi ég stamandi af undrun, afhverju“? – Bara afþví bara segir hún brosandi og segir svo bara Gleðileg jól. Svo brosti hún bara og keyrði í burtu á meðan ég stamaði Takk og eitthvað. Hún valdi mig til að gleðja þennan dag,“ segir Guðrún.

Guðrún segir ljóst að konan hafi einfaldlega viljað gleðja sig. „Ég settist inn í bíl og hágrét. Ég vona að hún sjái þessa færslu. Við ungu konuna langar mig að segja: TAKK fyrir mig Þú þurftir ekki að gera þetta, en gerðir af góðmennsku og hjartagæsku. Það kann ég að meta og mun taka þetta góðverk lengra með því að gera það sama fyrir einhvern annan í jólamánuðinum. Einhvern sem ég þekki ekki neitt, og valin af handahófi. Þú elsku stelpa settir eitthvað af stað sem vonandi margir taka sér til fyrirmyndar. Ég þekki þig ekki neitt – en í mínum huga ertu mikilvæg og dásamlega falleg manneskja, segir Guðrún.

„Hvað hef ég gert til að eiga þetta skilið?“

Ég sat úti í bíl seinnipartinn í dag eftir eina búðarferðina í Bónus,…

Posted by Guðrún Brynjólfsdóttir on Tuesday, December 1, 2020

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -