Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Guðrún syrgir Svavar: „Ég má ekki láta sorgina yfirtaka líf mitt“

Guðrún Ágústs­dóttir er einn af stofn­endum Rauðsokka­hreyfingarinnar, hún á að baki langan feril sem borgar­fulltrúi og síðar forseti borgar­stjórnar Reykja­víkur, hún var sendiherrafrú um árabil í Svíþjóð og síðar Kaupmanna­höfn og á síðustu árum hefur hún meðal annars unnið sem ráðgjafi hjá Lands­sambandi eldri borgara þar sem hún flutti meðal annars fyrir­lestra um einmana­leika. Guðrún missti eiginmann sinn, Svavar Gestsson, fyrr á þessu ári og skrifaði eftir fráfall hans bækling: „Við andlát maka. Ætlaðan eldra fólki aðallega.“

„Ég held að ég sé fæddur jafnaðar­maður,“ segir Guðrún Ágústs­dóttir. „Ég hef alla tíð sjálf verið vel sett og bjó alla mína æsku við fjárhagslegt öryggi en það gerðu ekki allir í Reykjavík. Sumt fólk bjó við svo mikla fátækt. Ég sá þennan gífurlega mismun og ég þoldi það ekki og ég þoli það ekki ennþá. Ég þoli ekki fátækina og ég held að hún sé öllum skaðleg. Ég fór einu sinni sem barn inn á heimili þar sem voru mörg börn og fékk að kíkja inn í stofuna sem var lítið herbergi. Svo komu krakkarnir þaðan heim til mín og var herbergið mitt stærra heldur en litla stofan heima hjá þeim. Ég fann eftir þetta að krakkarnir höfðu ekki sama áhuga á að vera jafnmikið með mér eins og áður. Þetta var eftir stríðið og þótt Ísland hafi grætt á stríðinu meira en margir aðrir þá flykktust margir á mölina og fluttu sumir í bragga sem Bretar og Bandaríkja­menn höfðu yfirgefið. Og það var bara ekkert annað hægt en að verða bara sósíal­isti. Eða það fannst mér.“

Hvað með drauma á æsku- og unglings­árunum?

„Ég ætlaði að verða húsmóðir og svo var ég farin að hugsa um að það gæti nú verið gaman að vera kennari. Það hvarflaði hins vegar aldrei að mér að ég myndi fara í pólitík; ekki fyrr en ég var komin á kaf í þessa pólitísku baráttu sem fór fram á vegum Rauðsokka­hreyfingarinnar.“

Guðrún lauk gagnfræða­prófi frá Kvenna­skólanum í Reykjavík árið 1964 og stundaði veturinn eftir það enskunám í London. Hún vann á þessum tíma hjá Lands­banka Íslands, var flug­freyja hjá Flug­félagi Íslands árin 1966 og 1967, skrifstofu­maður hjá Sjóvá næstu þrjú árin og hún vann á árunum 1971-1987 á skrif­stofu Hjúkrunar­skóla Íslands með þriggja ára hléi en þá bjó hún ásamt fjöl­skyldu sinni í Edinborg þar sem fyrri eignmaður hennar, Kristján Árnason, var í doktors­námi.

„Hjúkrunaskólinn var yndis­legur vinnu­staður. Kvenna­vinnustaður. Þar var mikill styrkur og stuðningur kvenna á milli og fannst mér líka vera óskaplega gaman að sinna nemendunum. Ég hef aldrei séð fólk taka út eins mikinn þroska og framförum eins og þar. Nemendurnir upplifðu svo mikla ábyrgð og urðu full­orðnir á svip­stundu.“

Guðrún var fræðslu- og kynningar­fulltrúi hjá Kvenna­athvarfinu á árunum 1991-1994.

„Það hafði mikil áhrif á mig að vinna þar og ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast þeim hryllingi sem sum börn og konur búa við varðandi líkamlegt og andlegt heimilis­ofbeldi. Við þurfum öll að taka höndum saman og vinna gegn þessu. Og við megum aldrei líta undan. Við verðum að sjá og við verðum að hlusta. Það er ekki prívat og persónulegt þegar gengið er í skrokk á manneskju og fólki ber alltaf að sinna svona málefnum. Ég tók eftir að sumar mæður héldu að börn þeirra hefðu ekki orðið vör við neitt en blessuð börnin vita alltaf af ofbeldinu. Það fer aldrei fram hjá þeim og þau bera þess mörg merki.“

Það er ekki prí­vat og per­sónu­legt þegar gengið er í skrokk á mann­eskju og fólki ber alltaf að sinna svona mál­efnum.

Rauðsokkahreyfingin

Guðrún er einn af stofn­endum Rauðsokka­hreyfingarinnar sem var stofnuð árið 1970 þegar hún var rúmlega tvítug og búin að eignast tvö börn af þremur.

„Barátta okkar snerist um að breyta samfélaginu. Það var svo mikið óréttlæti og svo er nátt­úrlega ennþá. Helstu baráttumál okkar voru meðal annars að íslenskar konur gætu ráðið yfir líkama sínum sjálfar, sem sé frjálsar fóstur­eyðingar. Þetta var mikil barátta en þær konur  sem vildu binda enda á meðgönguna og sem höfðu efni á því fóru til útlanda í fóstur­eyðingu. Hinar þurftu að leita til lækna hér á landi en þá var fóstur­eyðing ólögleg og fengu þær þá ekki þann aðbúnað og aðstoð sem þær þurftu. Svo eignuðust sumar börnin og gáfu þau kannski. Við börðumst líka fyrir því að vel yrði hugsað um öll börn samfélagsins, að börn ættu að fá að fara á dagheimili, sem kallast leikskóli í dag, en þá var í besta falli bara boðið upp á leikskóla­pláss í hálfan dag. Við börðumst einnig fyrir því að konur gætu menntað sig sem var ekki sjálfsagt. Það voru í raun og veru ekki allir skólar á landinu opnir konum þótt þeir ættu að vera það samkvæmt lögum. Svo var nátt­úrlega gífur­legur launa­mismunur milli karla og kvenna og í rauninni fáar konur í fullri vinnu og fáar konur sem höfðu til dæmis lokið háskóla­prófi. Svo vorum við konur ekkert í sögu­bókunum. Saga okkar var óskráð. Það var í rauninni eins og við værum ekki til. Það breytti lífi mínu að fara út í þessa baráttu með þessum öflugu konum og reyndar nokkrum körlum. Þetta var besti skóli ævi minnar.“

Vigdís Finnboga­dóttir var kosin forseti Íslands, fyrst kvenna í heiminum í almennum kosningum, og Jóhanna Sigurða­dóttir varð forsætis­ráðherra Íslands, fyrst íslenskra kvenna.

„Ég ákvað að styðja Vigdísi um leið og hún steig fram og ég var óskaplega glöð þegar hún var kosin. Þegar úrslitin lágu fyrir um nóttina þá lágu dætur mínar tvær, þá þriggja og 13 ára, sitt hvorum megin við mig sofandi og ég horfði á þær og hugsaði með mér að nú yrði lífið auðveldara fyrir þær sem og son minn sem var í sveit. Samfélagið yrði betra af því að þetta var svo stórt skref sem við vorum að stíga þarna. Það var dásamlegt að þetta skyldi nást. Ég er svo hrifin af Vigdísi. Mér finnst hún vera svo stórkostleg. Eins fannst mér stórkostlegt þegar Jóhanna Sigurðar­dóttir varð forsætis­ráðherra næstum þrjátíu árum síðar. Við höfðum unnið mikið saman til dæmis í Framkvæmda­nefnd um launamál kvenna sem var öflugt samstarf kvenna úr launþega­hreyfingunni og stjórn­mála­flokkunum og hún var ótrúlega dugleg og öflug. Þegar Katrín Jakobs­dóttur varð síðar forsætis­ráðherra þá hugsaði ég með mér að hún væri önnur konan til að gegna þessu embætti með svona stuttu millibili og að þetta yrði bara framtíðin. Þetta yrði bara sjalfsagður hlutur. Það þarf svo aðra Vigdísi; þegar Guðni hættir þá þurfum við að vera alveg viðbúin og tilbúin.“

Guðrún er spurð hvernig henni finnist staða íslenskra kvenna vera í dag.

„Það hefur nátt­úrlega orðið bylting. Gjör­bylting. Ég verð nú að hæla núverandi ríkis­stjórn en það hafa gífurlega mikil­vægir áfangar náðst. Konur ráða til dæmis núna yfir eigin líkama og þegar það mál var loksins afgreitt á Alþingi fyrir tveimur árum þá sat ég á pöllunum og hugsaði: „Það eru liðin rúm 50 ár frá því að við í Rauðsokka­hreyfingunni hófum þessa baráttu og vorum að dreifa bæklingum og krefjast frjálsra fóstur­eyðinga eins og það hét þá. Og nú sat ég þar og fullnaðar­sigur unninn.“ Og þá fór ég að gráta uppi á pöllunum. Og það gerðu fleiri.“ Þetta var í maí 2019.

Guðrún nefnir líka fæðingar­orlof sem eru 12 mánuðir í dag.

„Ég á þrjú börn og ég hef fengið samtals þrjá mánuði í fæðingar­orlof. Það eru breyttir tímar en við erum alls ekki komin nógu langt.“

Guðrún nefnir líka MeToo- og Free the nipple-byltingarnar. „Það er ýmislegt svona sem er að hrista upp í samfélaginu og er til góðs. Svo verð ég að nefna lög um kynrænt sjálfræði; þar sem fólki er veitt frelsi til að ákveða kyn sitt sjálft. Það er ýmislegt svona sem er dásamlegt. Og ég fagna ákaft. En við erum alls ekki komin á leiðar­enda,“ segir Guðrún og nefnir launamun kynjanna í dag sem og lífeyris­réttindi kvenna sem eru almennt lakari heldur en karla þar sem konur hafa margar hverjar verið á mun lægri launum en karlar og kannski í hluta­starfi.

Ég ákvað að styðja Vigdísi um leið og hún steig fram og ég var óskap­lega glöð þegar hún var kosin.

Stjórnmálin

Guðrún var árið 1974 beðin um fara í framboð fyrir Alþýðu­bandalagið sem hún gerði og tók sæti á lista í borgar­stjórnar­kosningunum það ár. Hún var í Albýðubandalaginu þangað til það var lagt niður árið 1999. Guðrún var aðal- eða vara­borgar­fulltrúi flokksins á árunum 1974-1994 og borgar­fulltrúi Reykja­víkur­listans frá 1994 -1999 og forseti borgar­stjórnar. Stærstu verkefni Guðrúnar jafnframt setu í borgar­stjórn voru undir­búningur og skipulagning á þátttöku íslenskra kvenna á Nordisk Forum í Oslo. Á þessum tíma var hún framkvæmda­stjóri við undir­búning Norræns kvenna­þings í Osló frá 1986-1988 á vegum Norrænu ráðherra­nefndarinnar. Einnig  var hún framkvæmda­stjóri Vestnorræns kvenna­þings 1992 sem haldið var á Egils­stöðum. Þá var hún aðstoðar­maður Svavars Gests­sonar á árunum 1988-1991 en hann gegndi þá stöðu menntamála­ráðherra.

Borgar­fulltrúi og forseti borgar­stjórnar Reykja­víkur. Guðrún er spurð hverju henni finnist hún hafa náð fram og komið til leiðar.

„Ég tel mig hafa lagt mitt lóð á vogar­skálar kvenna­baráttunnar undan­farna áratugi hvar sem ég hef starfað. Íslenskar konur hafa náð gríðar­legum árangri. Og niður­staðan er betra og rétt­látara samfélag fyrir konur, karla og börn. Ég vil nefna setu mína í félagsmála­ráði í 12 ár þar sem verkefnin voru að vinna gegn fátækt og óréttlæti og hjálpa fólki til sjálfs­hjálpar. Mín verkefni snerust þar mjög um málefni aldraðra. Ég var formaður Skipulags­nefndar í fimm ár og hafði áður verið lengi í þeirri nefnd. Ég var fyrsta konan sem varð formaður stjórnar Strætó og mér fannst það vera svakalega merkilegt. Mér fannst vera svo mikilvægt að almennings­samgöngur væru góðar og að allir gætu ferðast og komist leiðar sinnar, líka á kvöldin og á nóttunni. Við lögðum áherslu á að biðskýli væru góð og afsláttar­miðar væru fyrir þá sem ættu minna og að net almennings­samgangna væri mjög þéttriðið. Ég talaði svo mikið um þetta og var svo mikið að skrifa í blöðin að ýmsir félagar mínir voru kannski svolítið pirraðir á þessu öllu saman og fannst þetta ganga of langt; þeir sögðu að ég héldi að sósíalisminn væri á hjólum.“ Hún hlær. „En ég held að hann sé það. Ég hugsaði líka um umhverfis­málin; allt þetta svæði sem bíllinn tekur undir sig þegar nær helmingurinn af Reykja­víkurborg er lagður undir vegi, götur og bílastæði. Það er verið að breyta því núna með þéttingu byggðar. Ég barðist fyrir 30 kílómetra hámarks­hraða í sumum götum. Það gerðu líka borgar­fulltrúar í öðrum flokkum en flokkarnir þeirra studdu þá ekki. Þetta var hins vegar á stefnu­skrá Alþýðu­banda­lagsins – 30 kílómetra hámarks­hraði svo sem í kringum skóla. Ég var einmitt að rifja upp áðan að ég rétt náði að tjá mig um Kára­hnjúka­virkjun sem stjórn­málamaður áður en ég hætti en ég var algjör­lega mótfallin því að það væri ráðist með þessum hætti að landinu okkar. Og ég var harmi lostin eins og margir aðrir. Ég er mjög upptekin af fegurðinni. Mér finnst til dæmis ýmis fjöll vera óskaplega falleg og náttúran á Íslandi og víða um allan heim dásamleg. Og mér finnst að við eigum svolítið að dýrka fegurðina þannig að það sem byggt er, það manngerða, eigi líka að vera fallegt og í takt við náttúruna. Ég er til dæmis á móti háhýsum,“ segir Guðrún og bendir á strengi sem þar eru oft og segir að í eitt skiptið hafi hún rétt hjá háhýsi þurft að halda sér í skilti til að detta ekki í rokinu.“ Hún hlær. Segist hafa haldið í skiltið þangað til einhver kom og hjálpaði henni. „Háhýsarok er þekkt. Við eigum að reyna að minnka rokið í borginni og það hefur svo sannarlega minnkað af því að við erum með svo mikinn gróður. Svo þegar er verið að skipuleggja þá vil ég endilega að trappað sé niður að sjó þannig að flestir geti notið útsýnisins og það finnst mér vera lýðræðislegt.“

Ég tel mig hafa lagt mitt lóð á vog­ar­skálar kvenna­bar­átt­unnar und­an­farna ára­tugi hvar sem ég hef starfað.

Yfirborðslegt samfélag

Guðrún giftist Svavari Gestssyni árið 1993 eftir þriggja ára sambúð. Hjónin fluttu vestur um haf árið 1999 þegar Svavar varð sendi­herra og aðal­ræðismaður í Winnipeg þar sem hann sá meðal annars um hátíðahöld árið 2000 í Kanada í tilefni af þúsund ára afmæli landa­fundanna en þá var jafnframt minnst 125 ára afmælis vestur­ferðanna og þúsund ára afmælis kristni­töku á Íslandi.

„Þessi hátíðar­dagskrá samanstóð af  200 viðburðum sem voru mjög vel sóttir og segja má að þetta hafi kveikt nýtt líf í Íslendinga­samfélögunum og í Banda­ríkjunum. Hátíða­höldin náðu allt frá Vancouver í vestri til Nýfundnalands í austri. Einn viðburðurinn af þessum 200 voru tónleikar Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands víða um Kanada. Ég var í miklu stuði og tók þátt í þessu öllu alveg á fullu. Þetta var óskaplega skemmtilegt.“

Svavar var svo skipaður sendi­herra Íslands í Svíþjóð 2001–2005 og svo sendi­herra Íslands í Danmörku 2005–2010.

„Starf okkar í Stokk­hólmi og í Kaupmanna­höfn var gjörólíkt því sem var í Winnipeg. Við vorum ekki í diplómata­samfélagi þegar við bjuggum í Winnipeg. Þar urðu til vináttu­tengsl sem enn standa. Í Stokk­hólmi og Kaupmanna­höfn hins vegar eru aðstæður allt aðrar og diplóma­samfélagið form­fastara. Þetta var svolítið yfirborðslegt samfélag en mér fannst mjög gaman. Það var hægt að gera svo margt,“ segir Guðrún sem í Stokk­hólmi var orðin vara­formaður Diplomatic Women’s Club auk þess að vera meðal annars í bóka­klúbbi og hélt kvenna­fundi með sænskum vinkonum.

„Eitt af því sem mér fannst vera skemmtilegt eftir að við fluttum til Kaupmanna­hafnar var að vera í hópi kvenna sem hittust reglulega og ákváðum við að halda upp á 8. mars, alþjóð­legan baráttudag kvenna, og bjóða einhverjum frá Íslandi og halda samkomu í Jónshúsi. Þessu var haldið áfram eftir að ég flutti heim til Íslands. Maður getur ekki bara setið og beðið eftir boðskorti í kokteil­partí. Ég hugsaði með mér í Kaupmanna­höfn að ég þyrfti að gera eitthvað meira og þá lét ég drauminn rætast og fór í háskólanám en ég lauk prófi í félags­vísindum frá Hróarskeldu­háskóla árið 2009.“

Í Stokk­hólmi og Kaup­manna­höfn hins vegar eru aðstæður allt aðrar og diplóma­sam­fé­lagið form­fast­ara. Þetta var svo­lítið yfir­borðs­legt sam­fé­lag en mér fannst mjög gaman.

Það er fallegt að syrgja

Guðrún hefur sinnt ýmsum störfum og verkefnum eftir að þau Svavar fluttu aftur til Íslands. Reykja­víkurborg leitaði til hennar árið 2015 en þá var nýbúið var að stofna öldungaráð og var hún beðin um að verða formaður þess. Hún sinnti þeirri formennsku í fjögur ár. „Ég hafði gaman af því og það þarf alltaf að passa sérstak­lega upp á þann hóp aldraðra sem er fátækur. Við eigum að útrýma fátæktinni þar. Þetta var eitt af áherslunum í málefnum ráðsins sem og málefni eldri innflytjenda.“

Hún vann meðal annars sem ráðgjafi hjá Félagi eldri borgara og einnig Lands­sambandi eldri borgara þangað til nýlega en þar flutti hún meðal annars fyrir­lestra á vegum lands­sambandsins um einmanleika.

„Ég gerði það án þess að hafa hugmynd um að ég myndi lenda í þeirri stöðu að verða ekkja sem er eitt því sem er líklegast til að valda einmana­leika,“ segir Guðrún en Svavar lést fyrr á þessu ári. „Ég fór út um borg og bý og talaði um einmana­leika og það var eins og ég hefði verið í háskóla­námi í hvernig á að koma í veg fyrir einmana­leika þannig að ég vissi alveg hvað ég átti að gera þegar Svavar lést. Auðvitað breytist lífið óskaplega mikið þegar maður er kominn á þennan aldur, 74 ára, og þegar við erum ekki lengur tvö og sérstak­lega þar sem við vorum mjög náin og mikið saman. En nú veit ég hvað ég á að gera. Ég má ekki einangra mig og ég má ekki gleyma því að reyna að einblína á það sem veitir mér hamingju. Og ég má ekki láta sorgina yfirtaka líf mitt. Það liggur algjör­lega í augum uppi. Ég er elsta manneskjan í stórum hópi og það væri ómögulegt ef ég væri alltaf sorgmædd; grenjandi úti í horni. Það má alveg gráta og við gerum það öll.“ Guðrún á þrjú börn, börn Svavars eru þrjú, barna­börnin eru 17 í allt og von er á sjötta langafa/langömmu­barninu. „Það skiptir miklu máli að eiga tengslanet; eiga góða fjöl­skyldu og rækta vináttuna. Það er eitt besta ræktunar­starfið. Maður verður að passa sig á því að dvelja ekki í sorginni; lífið hefur upp á svo margt að bjóða. Og mjög margir hafa verið í mínum sporum þannig að ég er alls ekki ein.“

Guðrún segir að það skpti máli að sorgin sé ekki bara neikvæð. „Hún er falleg. Það er fallegt að syrgja. Það gefur auga leið að ef maður hefur elskað þá er mjög líklegt að maður muni syrgja. Sorgin er ákveðin vídd og það að upplifa sorgina breytir manni sem manneskju. Maður sér hlutina í öðru ljósi og það skiptir mig svo miklu máli að átta mig á því hvað ég hafði verið óskaplega lánsöm, hvað ég hafði átt gott líf og á enn og hvað ég á mikið af minningum sem ylja mér. Þannig að mér líður vel þegar ég rifja upp ýmislegt fallegt sem ég hef upplifað með mínum maka. Ég á ennþá makann minn þótt hann sé ekki hérna með mér. En ég á hann. Og hann er með mér. Þetta er einhvern veginn þannig að sorgin getur verið svo falleg þegar maður skoðar hlutina í þessu ljósi.“

Guðrún segir að þeir sem upplifa sorgina geri það hver með sínum hætti.

„Ég reyni eins og ég sagði að einblína á það sem veitir mér hamingju og það er búið að rannsaka það að það hjálpi að vera úti í nátt­úrunni og hreyfa sig, það þarf góða næringu og félags­skap. Ég veit af því og ég sinni þessu vel. Það sem hefur hjálpað mér mikið er að ganga. Ég geng og geng og geng og geng. Ég hef stundum pælt í hvort skrefa­teljarinn minn springi ekki af því að mér finnst vera svo gaman að ganga. Þegar Svavar var á gjörgæslu á Land­spítalanum þá byrjaði ég að ganga niður á Land­spítala og þegar hann var fluttur á gjörgæslu á Borgar­spítalanum gamla þá hugsaði ég með mér að ég gæti gengið þangað líka. Svo byrjaði ég að ganga meira og meira og stundum fór ég í göngutúra tvisvar á dag. Ég fann hvernig ég styrktist og efldist við gönguna og maður hugsar öðruvísi þegar maður er að ganga. Þess vegna hlusta ég aldrei á neitt þegar ég er að ganga heldur nota tímann til að velta ýmsu fyrir mér sem ég þarf að gera. Svo fór ég að draga vinkonur mínar með mér í göngur.“

Guðrún talar líka um náttúruna. „Svo finnst mér vera ótrúlega gott að vera úti í nátt­úrunni.“

Hún býr í Hlíða­hverfi og blasa hús við næstu götur út um alla gluggana. „Ég er í borgar­umhverfi sem ég elska en ég á sumar­bústað fyrir vestan þar sem er fallegasta útsýni í heimi og við Svavar vorum þar hálft árið frá 2006. Og þangað sæki ég næringu. Þar hlaðast einhver batterí. Það er gífurlega mikilvægt að vera úti í nátt­úrunni.“

Guðrún segir að eftir fráfall Svavars hafi hún gert sér grein fyrir að hún sé aðeins sterkari heldur en hún hélt að hún væri. „Ég held að fólki í kringum mig finnist það kannski líka. Ég sæki styrkinn í minningarnar, það jákvæða og það góða. Og ég á alveg ótrúlega mikinn forða. Ég er auðug hvað það varðar. Og ég á alveg yndislegt fólk – börnin mín og börn Svavars og fjöl­skyldur þeirra. Þetta eru góðar manneskjur og frábært fólk. Svo á ég góða vini þannig að ég er óskaplega lánsöm manneskja og mjög þakklát fyrir það.“

Ég má ekki ein­angra mig og ég má ekki gleyma því að reyna að ein­blína á það sem veitir mér ham­ingju. Og ég má ekki láta sorg­ina yfir­taka líf mitt.

Bæklingurinn Við andlát maka

Guðrún segir að þegar sorgin dynur yfir og makinn dáinn þá taki við gífurlega flókið ferli. „Það voru margir í kringum mig að hjálpa mér en það var samt margt sem enginn gat gert nema ég sjálf. Ég var að bugast yfir því hvað ég þurfti að tala við marga í bönkunum og til dæmis Orku­veitunni og breyta reikningum og loka. Þegar maður hefur afhent dánar­vottorð hjá sýslu­manni þá lokast banka­reikningar makans; líka reikningar sem fólk heldur að sé sameiginlegur heimilis­reikningur. Þannig að ef reikningurinn er á nafni hins látna þá lokast allt og ekkjan eða ekkillinn getur ekki notað kortið sitt sem er búið að loka. Mjólkur­potturinn úti í búð er óaðgengilegur. Þetta er eitthvað sem margir vita ekki en þurfa að vita.

Það er til fullt af bæklingum. Maður fær til dæmis bækling frá Land­spítalanum og útfarar­stofunni,“ segir Guðrún. Þessi reynsla og annarra varð til þess að hún tók sig til í samvinnu við formann LEB, Þórunni Sveinbjörns­dóttir, og útbjó bækling sem er kominn út: „Við andlát maka. Ætlað eldra fólki aðallega.“ Elsa S. Þorkels­dóttir lögfræðingur aðstoðaði við lagalegu hliðina.

„Ég er mjög ánægð með að vera búin að þessu og hafa ýmsir, þar á meðal prestar, fengið bæklinginn í hendur. Hann verður kannski settur á netið og það verður alltaf hægt að uppfæra ef það verða breytingar. “

Í bæklingnum er fjallað um það helsta sem eftir­lifandi makar standa frammi fyrir við andlát svo sem dánar­vottorð, undir­búning útfarar, dánar­tilkynningu, samskipti við banka, Trygginga­stofnun en einnig búskipti og lífeyris­málin. Þá er fjallað í bæklingnum um erfðamál, opinber skipti og einka­skipti, lífeyris­sjóði – séreigna­sparnað, heilsu­gæslu og stuðning í sorg.

„Ég vona innilega að þessi bæklingur gagnist sem flestum.“

Nú tekur eitthvað annað við

Guðrún segist vilja búa í samfélagi þar sem manneskjur beri virðingu hver fyrir annarri, sýni sanngirni og reyni að vanda sig þegar þær tjá sig. Hún vill að fólk sýni umhverfinu og landinu virðingu og jafnvel lotningu.

„Jafnaðar­stefnan er sú stefna sem við verðum að vinna eftir.“

Nýr kafli er hafinn í lífi Guðrúnar. Hún hefur einbeitt sér að kjörum aldraðra en nú tekur eitthvað annað við. Önnur verkefni.

„Ég hef áhuga á mörgum málefnum, ekki bara málefnum aldraðra..Ég finn ekki svo mikinn mun á hvað fólk er gamalt. Mér finnst ekki vera síður mikilvægt að passa upp á fátæk börn. Nú er ég alveg til í að fara að sinna einhverju öðru svo sem börnum og ekki síst börnum innflytjenda. Fólk er að vinna í alls konar sjálfboða­vinnu svo sem að lesa fyrir börn og læra með þeim.“

Guðrún hefur margt lagt á vogar­skálar samfélagsins í áratugi og hún segir að sér finnist það vera skylda hvers og eins að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. „Það veitir mér mikla ánægju og ein leið til að koma í veg fyrir einmana­leika. Þannig að þegar ég er að takast á við verkefni sem ég held að geti hugsanlega orðið til góðs þá líður mér vel. Þá er ég hamingjusöm.“

„Jafn­að­ar­stefnan er sú stefna sem við verðum að vinna eftir.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim