Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, er áhrifavaldur og kírópraktor sem virðist vera að gera það gott fjárhagslega.
Smartland segir frá.
Kappinn er kominn á glæsilegt ökutæki; alls ekki af síðustu sort – síður en svo og þar fram eftir götunum; um er að ræða grá-kampavínslitaðan Range Rover – bílar sem hlutu nafnbótina Game Over þegar hrunið skall á árið 2008, en fyrir það óku allir aðalspaðarnir á Range Rover, sem virðist nú vera kominn aftur í tísku.
Bíll Gummar er árgerð 2017 – var bíllinn keyptur um miðjan september. Og verðið var 13 milljónir króna.
Fyrirtæki Gummar, Kírópraktorstöð Reykjavíkur ehf., er skráð sem eigandi bílsins.
Óhætt er að segja að Gummi njóti mikillar velgengni í starfi: Fyrirtækið var rekið með góðum hagnaði í fyrra.
Það mun því ekki væsa um Gumma kíró og kærustu hans, Línu Birgittu Sigurðardóttur, í bílnum sem er klæddur ljósu og afar fallegu leðri að innan.
Bílakaupin eru því uppfærsla og til marks um góðan gróða – en áður keyrði Gummi um götur bæjarins á Land Rover Velar; minni og nettari en nýi bíllinn.