Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Gunnar Smári ósáttur við Egil Helga: „Ekki boðleg framganga þáttastjórnanda Ríkisútvarpsins“

Egill Helgason.
Egill Helgason.

„Líklega kom skrítnasta setning Silfursins frá Agli Helgasyni þegar hann fullyrti eftir efasemdir gesta sinna um að auðvaldið sem valdið hafði loftslags­vánni væri rétti aðilinn til að leysa vandann: „Kapítalisminn býr yfir dýnamík til að finna hinar grænu lausnir,“ sagði Egill.“

Svo mælir Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalista­flokks Íslands, eftir umræðu þáttinn Silfur Egils sem Egill Helgason stýrir:

Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson

„Svo hélt hann því fram að eini valkosturinn við fjármála­væddan dólga­kapítalisma síðustu andvarpa nýfrjálshyggjunnar væri iðnaðar­stefna Sovét­ríkjanna, að þau sem efuðust um forræði kapítal­istana væru að leggja til fimm ára áætlanir Stalíns og vildu reisa stál­iðjuver upp um allar sveitir,“ sagði Gunnar Smári og bætti við:

„Ég verð að segja að þetta er ekki boðleg framganga þátta­stjórnanda Ríkis­útvarpsins. Ekki fyrir að þetta ber með sér andúð á öllum sósíalisma og frelsis­baráttu almennings heldur er þetta svo víðáttu­vitlaust og rangt að það tekur engu tali. Það er enginn í veröldinni sem hefur nokkurt vit á loftslags­málum sem heldur því fram að Kapítalisminn býr yfir dýnamík til að finna hinar grænu lausnir. Enginn.“

Gunnari Smári verður tíðrætt um valkosti:

„Og svo þetta með valkostina; að ef þú vilt ekki botnlausa grimmd kapítalismans þá sértu að biðja um Stalínisma. Margaret Thatcher hélt þessu fram eftir hrun Sovét­ríkjanna að nú væri aðeins einn valkostur, hennar ömurlega nýfrjálshyggja. Eitt er að hafa misst trú á að allt hið góða og beygja sig undir þessa ömurlegu heimsmynd, en að gelta þetta á gesti sína í umræðu­þætti er bara allt annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim