Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Hafró haft af Íslandi hundruð milljarða og fiskveiðikerfi okkar er kerfi sóunar og spillingar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda er myrkur í máli varðandi fiskveiðikerfið hér á landi og segir að nú er „svo er komið í umræðunni um fiskveiðikerfið að telja má á fingrum annarrar handar þá sem dirfast að gagnrýna það.“

Hann nefnir að til langs tíma hafi hagsmunasamtök stórútgerðarinnar, í samvinnu við opinbera stjórnsýslu og fleiri, „breitt þann boðskap út um heimsbyggðina að Íslendingar hafi fundið upp og sett á fót fiskveiðikerfi sem sé í senn rekið af ábyrgð með sjálfbærni að leiðarljósi og því öllum til eftirbreytni.

Til að gera langa sögu stutta:

Settar eru á fót sykurhúðaðar ráðstefnur þar sem fræðimenn mæra og dásama kvótakerfið.

Í mínum huga er þetta ófyrirgefanlegur og andstyggilegur blekkingarleikur. Hvernig væri að þessir sömu aðilar upplýsi um „árangurinn“ frá 1984 varðandi uppbyggingu þorskstofnsins? Ástand humarstofnsins? Ástand loðnustofnsins? – svo fátt eitt sé talið,“ segir Arthúr  sem nefnir að „árið 1984 ráðlagði Hafrannsóknastofnun 220 þúsund tonna veiði af óslægðum þorski. 37 árum síðar leggur stofnunin til 222 þúsund tonna veiði, en ætti í raun að leggja til 188 þúsund tonn.

- Auglýsing -

Hvers vegna? Jú, vegna fáránlegs ákvæðis um „sveiflujöfnun“ sem kemur reiknimódeili Hafró í sjálfu sér ekkert við; staðreyndin er sú að Hafró hefur rekið nýtingarstefnu sem er löngu kolfallin á prófinu og þessi þrákelni Hafró hefur að öllum líkindum haft af þjóðinni hundruð milljarða í gjaldeyristekjum frá árinu 1984.“

Hann segir að til landsins sé á hverju ári „boðið vel meinandi og fróðleiksþyrstu fólki um velferð veiðimanna og fiskverkafólks á eigin heimasvæðum – til dæmis Afríku – sem við hér í norðrinu tölum hiklaust niður til með því að kalla „vanþróuð“ ríki – og þá „vanþróað fólk,“ Væntanlega.“

Arthur segir að yfir þessu „vanþróaða“ fólki „er messað um stórkostlegan árangur Íslendinga í fiskveiðistjórnun og þeim ráðlagt að yfirfæra dásemdina heim til sín. Í þessu sambandi rifja ég upp sögu sem mér var sögð fyrir löngu:

- Auglýsing -

Í einu ríkjanna við Vesturströnd Afríku var ákveðið að setja á framseljanlegt kvótakerfi í humarveiðum. Veiðarnar fóru og fara væntanlega enn þannig fram að menn vaða út frá ströndinni og kafa eftir bráðinni. Einn stærsti kvótinn lenti í fangi rakara inni í Mið-Afríku sem aldrei hafði séð sjó. Sjálfsagt var það tilviljun að rakarinn var náfrændi sjávarútvegsráðherrans,“ segir Arthur og bætir við:

„Til langs tíma hafa hagsmunasamtök stórútgerðarinnar, í samvinnu við opinbera stjórnsýslu og fleiri, breitt þann boðskap út um heimsbyggðina að Íslendingar hafi fundið upp og sett á fót fiskveiðikerfi sem sé í senn rekið af ábyrgð með sjálfbærni að leiðarljósi og því öllum til eftirbreytni.“

Og bætir við að það „að ráðleggja fólki frá slíkum ríkjum og svæðum að taka upp framseljanlegt, einstaklingsbundið kvótakerfi, þar sem spillingin er botnlaus í stjórnsýslunni, er ótrúleg ósvífni. Þeir Íslendingar sem þar eiga hlut að máli ættu að skammast sín. Þeir vita mætavel og jafnvel betur er margur hvert framhaldið er.“

„Staðreyndin er sú að við Íslendingar höfum ekki fundið upp neinar töfralausnir varðandi nýtingu og umgengni fiskimiða,“ segir Arthur og heldur áfram:

„Ekkert af því sem Hafró lofaði í upphafi varðandi „uppbyggingu“ þorskstofnsins, hvað þá annarra stofna, hefur staðist. Frá því Hafró var fært alræðisvald hvað þetta varðar er ekki hægt að benda á eitt einasta dæmi um „uppbyggingu“ eins einasta fiskistofns við landið sem heyrir undir aflamark.“

Arthuri er ekki skemmt:

„Kaldhæðnin ríður ekki við einteyming. Sá stofn sem „stækkaði“ mest á milli áranna 2020 til 2021 var hrognkelsastofninn – grásleppan. Hún er í sóknarmarki.“

Og Arthur er ekki hrifinn af því sem heitir aflamarkskerfi:

„Með því að úthluta veiðiheimildum í magni (kg) gerist það óhjákvæmilega. Stór hluti þeirra sem sækja miðin velja þau kíló úr sjó sem skila mestum verðmætum. Lái þeim hver sem vill. Þetta liggur í hlutarins eðli.“

Og „hér er smá myndlíking: ef X fjölda einstaklinga yrði hleypt inn í stórmarkað eftir matvælum þeim að kostnaðarlausu og viðkomandi gefið fyrirfram að hann mætti tína saman ákveðið magn (kg), er líklegt að viðkomandi kæmi til baka með kartöflur og lauk á tilboði til að uppfylla „kvótann“?“ spyr Arthur og segir að „þetta vandamál endurspeglast í ákæru Fiskistofu gagnvart Bergvík GK 22, sem var staðinn að grófu og óafsakanlegu brottkasti á fiski fyrir örfáum dögum. Í ljósi þeirrar kæru Fiskistofu ætla ég að leyfa mér að giska: Fiskistofa hefur undir höndum upplýsingar um brottkast á miðunum sem dregur upp gjörólíka mynd af því sem við viljum telja þjóðum heims – og sjálfum okkur – trú um.

Brottkast á Íslandsmiðum hefur viðgengist löngu fyrir vélvæðingu fiskiskipaflotans. Eftir vélvæðinguna jókst þetta stórkostlega,“ segir Arthur og heldur því fram fullum fetum að
„brottkast hefur alla tíð verið stundað í fiskveiðum. Ekki bara hérlendis – þetta er vandamál alls staðar í heiminum. Árlega eru veidd um það bil hundrað milljón tonn af villtum fiski. Segjum sem svo að „einungis“ 5% sé kastað í hafið. Það þýðir 5 milljónir tonna, eða ríflega fimmfalt það sem íslenski fiskiskipaflotinn dregur að landi árlega er fargað.“

Og aftur talar Arthur um aflamarkskerfið sem hann segir að bjóði „upp á sóðaskap. Það er með innbyggðum hvata til brottkasts – það er að hirða það sem er verðmætast og kasta hinu,“ og hann viðurkennir „fúslega að ég hafði í gegnum árin talið mér trú um að brottkastið hefði að mestu horfið með tímanum, væri að sjálfsögðu eitthvað – en hverfandi. Ég vildi trúa því að öll þessi „umhverfisvakning“ og sjálfbærnihjalið væri meira en orðin tóm. Ég er kominn á þá skoðun að ég hafi haft rangt fyrir mér. Það er kominn tími til að gera upp við núverandi fyrirkomulag, aflamarkskerfið.“

Arthur segir að það sé kominn „tími til að horfast í augu við þá staðreynd að „besta fiskveiðikerfi í heimi“ er kerfi sóunar og spillingar. Það er spilling að henda fiski – svo það sé sagt,“ og „drónaeftirlit Fiskistofu mun litlu sem engu breyta í þessum efnum.“

Arthur er í „ágætu sambandi við fjölmarga erlenda aðila í „fiskibransanum“ og flestir þeirra hafa þá ímynd af íslenskum fiskveiðum að hér hafi veri fundin upp töfralausn varðandi nýtingu fiskistofna og umgengni um fiskimið.

Gerum þeim grein fyrir staðreyndum og hættum blekkingarleiknum. Það er mun betra að við gerum það áður en þeir átta sig á því hver sannleikurinn er í málinu því það mun óhjákvæmilega gerast, fyrr eða síðar.“

Heimild: bb.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -