Hafsteinn, íbúi í Norðurmýrinni í Reykjavík, varar nágranna sína við svartklæddum kattaþjófi í hverfinu. Hann segir augljóst að þjófurinn sé ekki dýravinur.
Viðvörun Hafsteins má finna í hverfishópi íbúa Norðurmýrar á Facebook. „Ég finn mig knúinn til láta nágranna vita af atviki sem átti sér stað í morgun á Skeggjagötu. Um kl. 10 í morgun varð ég vitni að svartklæddum manni hrifsa til sín köttinn minn og hlaupa með hann í átt að Snorrabraut. Það var fyrir algera tilviljun að ég varð vitni að þessu,“ segir Hafsteinn og bætir við:
„Eftir að hafa hlupið á eftir honum dágóðan spöl þá sleppti hann kettinum blessunarlega og ber kisi sig vel. Þessi maður er víst íbúi á Gistiheimili á Flókagötu. Það var augljóst að maðurinn var ekki dýravinur og vildi ég því láta nágranna vita og biðja ykkur um að huga vel að kisunum ykkar.“
Dabjörtu nokkurr, íbúa í hverfinu, líst ekki vel á lýsingarnar. „Ónei! Léstu lögregluna vita? Mikið voruð þið kisi heppnir að þú sást þetta gerast!,“ segir Dagbjört. Og Hafsteinn svarar því til að málið sé komið á borð lögreglunnar.
Hanna er heldur ekki hrifin og ætlar að passa upp á sinn kött í hverfinu. „Mín verður sko inni eftir þennan lestur Takk fyrir!,“ segir Hanna.