Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hagsmunasamtök heimilanna krefja seðlabankastjóra svara um verðtryggð lán – Bönnuð víða um heim

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri

Hagsmuna­samtök heimilinna kalla eftir afstöðu seðla­banka varðandi verð­tryggingu í nýrri tilkynningu. Þau segja að þrátt fyrir að Ásgeir Jónsson, seðla­bankastjóri hafi svo sannarlega komið með ferskan andblæ inn í æðstu stjórn peninga­mála hér á landi sé nokkuð erfitt að lesa úr yfir­lýsingum hans skýra afstöðu með eða móti verð­tryggingu lána til neytenda. Þó sé ljóst að Ásgeir sé vel meðvitaður um andúð þorra almennings á verð­tryggingunni.

Í tilkynningunni segir ennfremur: „Í viðtali í Viðskipta­blaðinu 1. júlí sl. sagðist Ásgeir „vona að við séum að komast á þann stað núna að sá árangur sem við höfum náð í bar­áttunni við verð­bólgu leiði til þess að [óverðtryggð] nafn­vaxta­lán geti tekið við” af verð­tryggðum lánum. Hann sagðist þó sjá fyrir sér að það gerðist með náttúru­legum hætti, en sæi samt ekki tilganginn með því að banna verð­tryggð lán. Þessi ummæli hafa vakið furðu margra, þar á meðal Hagsmuna­samtaka heimil­anna, og vakið ýmsar spurningar”.

Bönnuð í 25 ríkjum

Hagsmuna­samtökin spyrja hvort að seðla­bankastjóri viti ekki að verð­tryggð lán flokkist sem lán með neikvæðri afborgun (e. negative amortisation) eða að vegna neytenda­verndar­sjónarmiða sé lán sem hafa slíka eigin­leika bönnuð í 25 ríkjum Banda­ríkjanna og þarlendar stofnanir og félaga­samtök hafi varað sérstak­lega við þeim?

„Veit seðla­bankastjóri ekki að lán með slíka eigin­leika eru einnig bönnuð í mörgum Evrópu­löndum? Telur seðla­bankastjóri þessar aðgerðir stjórn­valda þeirra ríkja vera tilgangs­lausar? Veit seðla­bankastjóri ekki að verð­tryggð lán auka hættuna á fjármála­legum óstöðug­leika með því að auka hlutfall spákaupmennsku­lántakenda (e. speculative borrowers)?”

Spurt er….

Og það brenna fleiri spurningar á Hagsmuna­samtökunum:

,,Veit seðla­bankastjóri ekki að verð­trygging lána heimil­anna þvælist fyrir peninga­stefnu seðla­bankans og gerir honum þannig erfiðara að ná verðbólgu­markmiði sínu? Veit seðla­bankastjóri ekki að þetta knýr seðla­bankann til þess að beita stýrivaxta­tæki sínu af meiri hörku en ella sem leiðir til hærra og óstöðugra vaxta­stigs en ef lán heimil­anna væru almennt óverðtryggð?

Veit seðla­bankastjóri ekki að hærra og óstöðugra vaxtastig vegna útbreiðslu verð­tryggðra lána ýtir undir vaxtamunar­viðskipti og gjaldeyris­bólur sem gera gengi krónunnar óstöðugra en ella? Veit hann ekki að vegna mikils vægis innfluttra vara í vísitölu neyslu­verðs leiðir óstöðugra gengi til óstöðugri verðbólgu og gerir seðla­bankanum erfiðara en ella að hemja slíkar sveiflur?

Veit seðla­bankastjóri ekki að verð­trygging ýtir undir útlána­getu banka og eykur þannig peninga­magn í umferð sem myndar vítahring víxlverkunar verðbólgu og peningalegrar þenslu?

Hagsmuna­samtök heimil­anna telja reyndar að seðla­bankastjóri viti flest af því sem hér hefur verið rakið og hafa því óskað eftir fundi með honum til að ræða nánar um skaðleg áhrif verð­tryggingar á heimilin og hagkerfið”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim