Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Hagsmunir Íslands í EES-samstarfinu í brennidepli á fundum utanríkisráðherra í Brussel

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Aðild Íslands að EES-samningnum hefur fært Íslendingum ótvíræðan ávinning á undanförnum áratugum. Aðgangur okkar að 450 milljóna markaðssvæði er ákaflega mikilvægur, en við það bætist margvíslegt annað samstarf sem Íslendingar og aðrir íbúar á EES svæðinu njóta góðs af. Það er auðvitað mikilvægt að eiga góð og uppbyggileg samskipti milli samningsaðila og ég verð vör við velvilja í garð EES samstarfsins hjá þeim sem ég hef hitt. Á fundum mínum hef ég lagt mikla áherslu á tollfrelsi í viðskiptum með sjávarfang og lagði einnig áherslu á þýðingu þess að efla virkt samráð um utanríkispólitísk málefni, til dæmis á sviði alþjóðlegra þvingunaraðgerða. Við höfum nú þegar fundið fyrir auknum skilningi á þessu sjónarmiði,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra á vef utanríkisráðuneytisins.

Samstarf á vettvangi EES, viðskiptamál og pólitískt samráð um alþjóðamál voru meðal umræðuefna á fundum Þórdísar Kolbrúnar með fulltrúum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) í vikunni.

Þórdís Kolbrún fundaði með Maros Šefčovič, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB sem fer m.a. með málefni EES-samningsins. Auk framkvæmdar samningsins var sérstaklega rætt um áhrif mikilvægra stefnumála á borð við Græna sáttmálann og Stafræna starfsskrá ESB á innri markaðinn og sameiginleg markmið Íslands og ESB. Auk þess var farið yfir undirbúning viðræðna um nýtt samningstímabil Uppbyggingarsjóðs EES. Í því sambandi tók ráðherra sérstaklega upp málefni sem snúa að fríverslun með sjávarafurðir og endurskoðun samnings um viðskipti með landbúnaðarafurðir. Ótryggt ástand í öryggismálum í Evrópu bar einnig á góma og lagði ráðherra áherslu á mikilvægi samráðs við Ísland og hin EFTA-ríkin í EES  þegar kæmi að aðgerðum eins og viðskiptalegum þvingunaraðgerðum.

Utanríkisráðherra fundaði svo með Valdis Dombrovskis, framkvæmdastjóra viðskiptamála. Á fundinum var rættu þau um viðskipti Íslands og ESB og hugmyndir Íslands um endurskoðun á núverandi viðskiptaumhverfi, einkum fyrir sjávarafurði, þar sem vikið var að endurskoðun samningsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.

„Að undanförnu höfum við sótt á um bættan aðgang fyrir sjávarafurðir inn á Evrópu, bæði til að bregðast við breyttum þörfum markaðarins en einnig til að tryggja okkur í samkeppni gagnvart öðrum þjóðum. Ég ítrekaði afstöðu okkar um að tímabært sé að hefja alvarlegar viðræður um fulla fríverslun með sjávarafurðir jafnframt því að leysa þyrfti úr þeim atriðum sem tengjast viðskiptum með landbúnaðarvörur“, sagði Þórdís Kolbrún.

Einnig átti ráðherra fund með framkvæmdastjóra landbúnaðarmála, Janusz Wojciechowski, þar sem rætt var um stöðu og framkvæmd gildandi samnings Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur og endurskoðun hans.

Þórdís Kolbrún skoðaði EFTA-húsið, hér er hún með Andra Lútherssyni, aðstoðarfrkvstj. EFTA.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -