Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Halldór segir að HM „sé haldin á blóðvöllum einræðisríkis sem þverbrýtur mannréttindi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Halldór Reynisson segir að „heimsmeistarakeppin karla í fótbolta er að hefjast í Qatar. Undir venjulegum kringumstæðum er slíkt keppni atburður sem við áhugamenn um fótbolta bíðum með óþreyju enda hafa þessar keppnir oft verið veisla hinnar fallegu íþróttar.

Sjálfur hef ég fylgst með heimsmeistarakeppnum í karlaboltanum frá 1966. Nú bregður öðruvísi við,“ segir Halldór og bætir við:

„Keppnin er haldin í landi sem á sér enga fótboltahefð og hefur aldrei komist á heimsmeistarakeppni. Fréttir hafa borist af því að fjöldi fólks, aðallega verkamenn frá Asíu hafi látið lífið við framkvæmdir.

Samkvæmt nýlegri frétt í Guardian er talið að allt að 6500 manns hafi látist í undirbúningi keppninnar. Talað er um mannsal þar sem óprúttnir skuggabaldar notfæra sér eymd þessa verkafólks. Samkvæmt sömu heimild hafa allt að eitt hundrað þúsund verkamenn orðið fyrir barðinu á slíkum glæpamönnum. Þá eru háværar raddir um að stórfelldar mútur hafi verið greiddar til áhrifafólks í fótboltanum til að tryggja að mótið væri haldið í Qatar, væntanlega til að þvo olíumengaðar hendur al-Thani einræðisherra. Ofan í kaupið eru mannréttindi í þessu olíuauðuga Arabaríki ekki upp á marga fiska.“

Halldór nefnir sem dæmi að „samkynhneigt fólk er óvelkomið, viðurlögin við samkynheigð í landinu eru allt að 5 ára fangelsi. Og allt að 7 ára fangelsi fyrir kynlíf utan hjónabands, – lesist konur. Lastalistinn er eflaust mun lengri en þetta nægir.“

Hann bendir einnig á að „Philipp Lahm sem var fyrirliði heimsmeistara Þjóðverja 2014 ætlar að sitja heima af siðferðisástæðum. Hann segir að mannréttindi verði að vera nauðsynleg forsenda ætli einhver sér að halda heimsmeistarakeppni í fótbolta.“

- Auglýsing -

Halldór segir frá því að „þegar ég var strákur að spila fótbolta ólumst við mörg upp við heilræði sr. Friðriks, stofnanda Vals og Hauka: “Látið ekki kappið bera fegurðina ofurliði”.

Nú er það ekki bara kappið sem virðist hafa borið fegurðina ofurliði í fótboltanum einnig heldur peningarnir. Nýjasta dæmið er svo að KSÍ lætur Saudi-Arabíu sem er alræmt ríki fyrir brot á mannréttindum kaupa sig til að halda æfingaleik fyrir karlalandsliðið. Það kemur í kjölfar umræðu um þá eitruðu karlmennsku og ásakana um kynferðisofbeldi sem virðist hafa verið kúltúrinn í kringum karlaboltann, altént sumstaðar.“

Halldóri þykir það „umhugsunarvert í ljósi þess að fótboltafélög hafa verið óþreytandi að minna á uppeldisgildi íþróttarinnar, einkum til að fá peninga úr sameiginlegum sjóðum landsmanna.

- Auglýsing -

Ég er ekki viss um að strákarnir okkar hafi alltaf fengið nógu gott uppeldi í fótboltanum, að dæma af þeim málum sem upp hafa komið. Helsta von okkar fótboltaáhugamanna um fallegan leik hér á landi er kvennafótboltinn, ekki síst íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sem er til fyrirmyndar.

Það berst óþefur af peningum og ofbeldi frá heimsmeistarakeppninni í fótbolta sem haldin er í Qatar. Segja má að keppnin sé haldin á blóðvöllum einræðisríkis sem þverbrýtur mannréttindi. Svo mikill er óþefurinn að ég sem áhugamaður um fótbolta til margra áratuga – ætla að slökkva kyrfilega á sjónvarpinu þegar kveikt verður á flóðljósum og leikir verða sýndir í sjónvarpi. Sömuleiðis ætla ég að forðast umfjöllun um þetta alræmda mót. Ég skora á alla áhugamenn um hina fallegu íþrótt að gera slíkt hið sama.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -