Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Hannes féll eftir 10 ára bindindi: „Fjörutíu og fjögurra ára faðir gisti fangageymslu þá nótt“

Hannes féll eftir 10 ára bindindi: „Fjörutíu og fjögurra ára faðir gisti fangageymslu þá nótt“
Hannes Stein­dórs­son.

„Á næsta borði setj­ast tveir herra­menn og eru að drekka. Á ein­hvern óskilj­an­legan hátt þigg ég boð um að drekka með þeim, það endar ekki betur en svo að ég lendi í áflogum við þessa menn og við erum beðnir um að yfir­gefa veit­inga­stað­inn,“ skrifar Hannes Stein­dórs­son, bæj­ar­full­trúi og fast­eigna­sali, um ferð sína erlendis sem varð til þess að hann féll eftir 10 ára edrú­mennsku.

Hannes lýsir atburð­inum í Svíþjóð af ein­lægni. Eftir að lög­reglan kom á veit­inga­stað­inn var hann lok­aður inni í fanga­klefa.

„Fjörtíu og fjög­urra ára, þriggja barna faðir gisti fanga­geymslu þá nótt. Daginn eftir geng ég út eftir að hafa greitt sekt, ein til rík­is­ins og einnig til þess­ara ágætu manna. Það var ekki hátt á mér risið, skömmin ólýs­an­leg og líð­anin eftir því. Ég fer beint í faðm fjöl­skyldu minnar og í raun trúi ekki að ég hafi lagt þetta á þau,“ skrifar Hannes.

Hann seg­ist nú hafa tekið upp þráð­inn að nýju eftir hlið­ar­sporið og rækti edrú­mennsku sína.

„Ég flýg til Íslands dag­inn eftir og tek ábyrgð á gjörðum mínum með við­eig­andi hætti. Eftir það fór ég beint á þann stað þar sem ég á heima, 12 spora sam­tök sem gera mig að betri manni, betri föður, betri syni“.

Færsla Hannesar í heild sinni:

„Kæru vinir, það eru þung skref að skrifa þessa færslu, þið sem þekkið mig vitið að ég er bind­ind­is­maður og alka­hólisti, ég hef skamm­ast mín lengi fyrir það og ekk­ert verið að aug­lýsa það.

Ég hef verið alls­gáður meira og minna síðan 2005 og alveg síðan 2009, í tæp 11 ár hef ég verið frjáls og laus við Bakkus. Í líf­inu gerir maður mörg mis­tök og tekst á við alls­konar verk­efni sem manni eru falin, sum þægi­leg og fal­leg, önnur erfið og ill­við­ráð­an­leg, þannig er jú lífið. Ég gerði stór mis­tök fyrir nokkru þar sem ég drakk sterkt áfengi, ég er með ofnæmi fyrir áfengi og mér er full­ljóst að það á ekki að fara inn fyrir mínar varir. Ástæða þessa skrifa er í fyrsta lagi að koma hreint fram og sætta mig við þá stöðu að ég er alka­hólisti, önnur ástæða er að fjöl­miðlar hafa hringt í mig með vel krydd­aðar sögur og undir rós hótað að birta lyga­sögur og kjafta­sögur. Rétt skal vera rétt, und­ir­rit­aður sat einn inná veit­inga­stað í sví­þjóð að svara tölvu­póstum og sím­tölum, á næsta borði setj­ast tveir herra­menn og eru að drekka. Á ein­hvern óskilj­an­legan hátt þigg ég boð um að drekka með þeim, það endar ekki betur en svo að ég lendi í áflogum við þessa menn og við erum beðnir um að yfir­gefa veit­inga­stað­inn, stuttu seinna kemur lög­reglan og fylgir okkur út af staðnum, Fjörtíu og fjög­urra ára þriggja barna faðir gisti fanga­geymslu þá nótt. Daginn eftir geng ég út eftir að hafa greitt sekt, ein til rík­is­ins og einnig til þess­ara ágætu manna. Það var ekki hátt á mér risið, skömmin ólýs­an­leg og líð­anin eftir því. Ég fer beint í faðm fjöl­skyldu minnar og í raun trúi ekki að ég hafi lagt þetta á þau. Ég flýg til Íslands dag­inn eftir og tek ábyrgð á gjörðum mínum með við­eig­andi hætti. Eftir það fór ég beint á þann stað þar sem ég á heima, 12 spora sam­tök sem gera mig að betri manni, betri föður, betri syni.

Ég ákvað að segja frá þessu sjálfur þar sem ég sætti mig ekki við hót­anir fjöl­miðla.

Ég er kom­inn á réttan stað aftur og ætla að vera þar. Kær­leiks­kveðja Hannes Stein­dórs­son sem er svo langt frá því að vera full­kom­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi