Fimmtudagur 28. mars, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Haraldur með mikilvæg skilaboð – Missti allt þegar húsið brann: „Ég hélt að þetta væru mín örlög“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Haraldur Rafn Pálsson hélt að endalokin væri nærri þegar hús hans við Kaldasel í Breiðholti brann á dögunum. Hann missti næstum allt innbú í þeirri hræðilegu lífreynslu. Haraldur greinir frá þessu á Facebook og hvetur alla til að fjárfesta í eigin öryggi og kanna hvort reykskynjarinn sé í lagi á heimilinu.

„Eins og eflaust margir vita þá lenti ég í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að missa húsið mitt sem ég hafði nýlega fest kaup á, ásamt öllu mínu innbúi í eldsvoða þann 25. jan s.l. Þessi atburður markaði mikil og djúpstæð áhrif á mig þar sem litlu munaði að ég yrði sjálfur bráð eldsins. Fyrir einhverja óskiljanlega ástæðu vaknaði ég uppúr værum svefni og náði naumlega að átta mig á aðstæðum og koma mér út, án teljandi meiðsla, fyrir utan væga reykeitrun og nokkrar skrámur. Aðeins nokkrar sekúndur réðu þar úrslitum og á tímabili hélt ég að þetta væru mín örlög og endir,“ segir Haraldur.

Hann segist gífurlega þakklátur að hafa komist lífs af. „Fyrir það eitt að vera hér frásögufærandi er ég gífurlega þakklátur og get sagt það með heilum hug að eg kann að meta lifið betur og horfi á það með öðrum augum nú en áður. Engin orð eru til sem lýsa því hversu þakklátur ég er fyrir það að eiga góða fjölskyldu að og allra bestu vini sem völ eru á. Án ykkar væri ég ekki heill heilsu í dag og verð ég ykkur ævinlega þakklátur fyrir allt það sem þið hafið gert fyrir mig,“segir Haraldur.

Hann segist hafa skrifa færsluna til þess að biðla fólk um að kanna stöðu reykskynjara. „Ég ákvað að setja inn þennan status fyrst og fremst til þess að biðla til ykkar allra að kanna stöðu mála á reykskynjurum og öðrum reykvörnum á ykkar heimili og gera ráðstafanir samkvæmt þvi. Þetta er eitthvað sem engin á von á að gerist hjá sér en getur gerst fyrir alla. Eldsvoði gerir ekki boð á undan sér. Í öðru lagi langar mig að þakka öllum þeim sem hafa sent mér hugheilar kveðjur eftir atvikið eða sett sig i samband við mig – ég kann mikið vel að meta það. Að lokum vil eg taka fram að eg afþakka öll framlög og þess háttar en bið ykkur þess i stað að fjárfesta í ykkar eigin öryggi og hlúa að ykkar nánustu. Það er alls ekki sjálfgefið að eiga gott fólk i kringum sig.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -