Sonur og tengdadóttir konunnar sem lést á Blönduósi hefur verið sleppt úr haldi lögreglu en voru þau bæði handtekin á vettvangi í gær. Greindi lögreglan frá því í gærkvöldi að skotmaðurinn hefði ekki svipt sig lífi og að hann hafi ekki verið myrtur með skotvopni.
Samkvæmt heimildum Mannlífs kom sonur hjónanna, sem urðu fyrir árásinni, út úr herbergi á heimilinu og réðst á skotmanninn með þeim afleiðingum að hann lést. Konan lést í árásinni og maðurinn slasaðist alvarlega. Ekki verður farið fram á gæsluvarðhald yfir syninum sem vó banamann móður sinnar en hefur hann stöðu sakbornings í málinu. Þá herma heimildir Mannlífs að ungabarn hafi verið á heimilinu þegar árásin átti sér stað.
Fréttin verður uppfærð.