Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.8 C
Reykjavik

Harmleikurinn í Torrevieja: Guðmundur úrskurðaður í gæsluvarðhald

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðmundur Freyr Magnússon, sem grunaður er um að hafa banað sambýlismanni móður sinnar aðfaranótt sunnudags í Torrevieja, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald af dómara á Spáni.

 

Lögreglan á Spáni, sem hefur fram til þessa lítið viljað tjá sig um málið vegna rannsóknarhagsmuna, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu Vísis. Þar kemur fram að ekki hafi fengist uppgefið hvers langt varðhaldið er og heldur ekki hvers konar glæp Guðmundur er grunaður um að hafa framið, en á Spáni er manndráp flokkað eftir alvarleika samkvæmt þarlendri löggjöf.

Kristín Guðmundsdóttir, móðir Guðmundar Freys og sambýliskona hins látna, Sverris Olsen, hefur gagnrýnt fjölmiðla fyrir fréttaflutning af málinu. Í viðtali við Fréttablaðið í dag segir Kristín að Informacion, sem íslenskir miðlar hafa meðal annars vitnað í, hafi ekki greint rétt frá atburðarásinni sem leiddi til andláts Sverris. Miðillinn greindi frá því að sonur hennar hafi klifrað yfir vegg og þannig komist inn á heimili þeirra Kristínar og Sverris. Þar segir að komið hafi til átaka sem endað hafi með því að sambýlismaðurinn hafi fallið á rúðu og hún brotnað. Við það hafi hann hlotið áverka og látist. Hið rétta sé að sonur hennar hafi kastað 14 kílóa gaskút í gegnum rúðuna, ruðst inn á heimilið, ýtt Sverri í gólfið og lagt ítrekað til hans með hnífi. Það hafi leitt til dauða hans.

Sagði Kristín ennfremur að þetta væri ekki fyrsta sinn sem sonur hennar hefði ráðist á Sverri. Hann hefði áður veist að Sverri og lyktaði það með því að leggja þurfti Sverri inn á spítala eftir höfuðhögg. Í kjölfarið hafi þau fengið nálgunarbann á Guðmund.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum á Guðmundur langan sakaferil að baki hér á landi. Frá 16 ára aldri hefur hann minnst átta sinnum verið dæmdur til refsivistar fyrir hegningarlagabrot, fíkniefnabrot, tollalagabrot, lyfsölulagabrot og skotvopnalagabrot. Þann 19. desember 2007 var Guðmundur Freyr dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa kveikt í parhúsi á Þorlákshöfn. Kona og tvö börn voru sofandi í hinum hluta parhússins þegar Guðmundur lagði eld að húsinu. Í sama dómi var Guðmundur Freyr dæmdur fyrir rán vopnaður hnífi, fjársvik, ölvunarakstur og vörslu fíkniefna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -