Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Ekki hægt að hafna hlutverki í Tarantino-mynd

Nýjasta kvik­mynd Quentins Tar­antino, Once Upon a Time in Hollywood, er komin í bíó. Glöggir Íslend­ingar sem hafa séð mynd­ina hafa eflaust margir tekið eftir að förð­un­ar­meist­ar­inn Heba Þór­is­dóttir fer með hlut­verk í mynd­inni í atriði á móti Leonardo DiCaprio.

Heba, sem sér um förð­un­ina í kvik­mynd­inni ásamt því að fara með hlut­verk förð­un­ar­fræð­ings­ins Sonyu, segir að þegar Quentin Tar­antino biðji mann um að fara með hlut­verk í kvik­mynd­inni sinni þá sé ekki hægt að hafna því.

„Þetta er nú mjög lítið hlut­verk, en þó stærra en hlut­verk leik­ar­ans sem leikur sjálfan Roman Polanski,“ segir Heba og hlær þegar hún er spurð út í hlut­verk sitt í Once Upon a Time in Hollywood.

Aðspurð hvernig það kom til að hún land­aði hlut­verki í mynd­inni segir Heba: „Í und­ir­bún­ings­vinnu fyrir kvik­myndir sínar heldur Quentin reglu­lega bíó­sýn­ingar fyrir fólkið sem vinnur að gerð mynd­ar­innar. Þá sýnir hann þær kvik­myndir sem veita honum inn­blástur. Í þetta sinn horfðum við á margar myndir sem eru skotnar í Los Angeles á árunum 1968 til 1972. Eftir eina sýn­ing­una kom hann upp að mér og sagði: „Heba, ég vil að þú farir með smá­hlut­verk í mynd­inni.“ Það er nú ekki beint mín deild að vera fyrir framan mynda­vél­ina en þegar Quentin Tar­antino býður þér hlut­verk þá segir þú bara já,“ útskýrir Heba og skellir upp úr.

Hún við­ur­kennir að hún hafi fundið fyrir stressi vegna hlut­verks­ins. „Ég var búin að lesa hand­ritið þegar ég þáði hlut­verkið fyrst. Svo þegar ég las hand­ritið aftur, nokkru síðar, sá ég að það var búið að breyta hlut­verki Sonyu og það orðið stærra. Ég vissi sem sagt ekki að ég væri með línur á móti Leonardo DiCaprio fyrr en tveimur dögum áður en atriðið var tekið upp.“

Heba þekkir Leonardo DiCaprio ágæt­lega þar sem þau hafa unnið saman áður. Hún lýsir honum sem miklum húmorista og segir hann vera skemmti­legan.

„Ég hefði ekki getað þetta án hans. Hann las lín­urnar yfir með mér og hjálp­aði mér að slappa af. Ég er mjög fegin að það var hann sem lék á móti mér í þess­ari senu,“ segir Heba. „Þegar hann var svo seinna að æfa línur fyrir annað atriði þá kall­aði hann á mig og bað mig um að lesa á móti sér og sagði að af því að ég væri nú orðin leik­kona þá ætti ég að geta æft þetta með honum. Hann er hrika­lega skemmti­legur.“

„Ég vissi sem sagt ekki að ég væri með línur á móti Leonardo DiCaprio fyrr en tveimur dögum áður en atriðið var tekið upp.“

Mikil öryggisgæsla á tökustað

Ásamt Leonardo DiCaprio fer fjöld­inn allur af stór­leik­urum með hlut­verk í mynd­inni. Sem dæmi má nefna Brad Pitt, Margot Robbie, Dakotu Fanning, Luke Perry, Al Pacino, Lenu Dunham og Kurt Russel.

Aðspurð hvernig sé að vera á töku­stað með svo mörgum stór­leik­urum segir Heba: „Það sem ein­kennir það að vera á vinnu­stað með svona stórum leik­urum er að það er rosa­lega mikil örygg­is­gæsla. Sér­stak­lega í kringum Brad Pitt. Hann getur ekk­ert farið, mað­ur­inn. Það þurfti til dæmis að byggja stórt tjald í kringum „trailer­inn“ hans og hann mætir í stórum bíl með skot­heldum rúðum, með bíla­rófu á eftir sér og örygg­is­verði. Ég get ekki ímyndað mér að þetta sé skemmti­legt líf,“ segir Heba.

Hún segir að þá sé mikið lagt upp úr því að ljós­myndum af bún­ingum og leik­munum úr mynd­inni sé ekki lekið á Netið. „Þetta hefur breyst mikið með til­komu sam­fé­lags­miðla. Búningar og förðun geta gefið svo mikið til kynna um bíó­myndir og þess vegna er ekki gott ef ljós­myndir af leik­urum í bún­ingum birt­ast á Netinu áður en kvik­myndir koma út.“

Margot Robbie leikur Sharon Tate í Once Upon a Time in Hollywood.

Sharon Tate með í anda

Sögusvið Once Upon a Time in Hollywood er Los Angeles árið 1969. Myndin er laus­lega byggð á sönnum atburðum og er skáld­skap fléttað saman við raun­veru­leik­ann á skemmti­legan hátt.

Leik­konan Margot Robbie fer með hlut­verk leikkon­unnar og fyr­ir­sæt­unnar Sharon Tate í mynd­inni. Heba segir það hafa verið afar skemmti­legt verk­efni að farða Margot Robbie fyrir þetta hlut­verk. „Þetta var svo skemmti­legt tíma­bil. Það urðu mikil umskipti í tísku og förðun á þessum tíma. Þarna var til dæmis mikil augn­förðun með gervi­augn­hárum að víkja fyrir nátt­úru­legri og hippa­legri förðun þar sem fólk varla mál­aði sig. Og það fór svo­lítið eftir því hvaða senur var verið að taka upp, hvort við vorum að vinna með mikið „makeup“ og upp­sett hár eða hippat­ísk­una. Þannig að þetta var svaka­lega skemmti­legt,“ útskýrir Heba.

Hún bætir við: „Margot Robbie er líka alveg ofboðs­lega fín og það var gaman að vinna með henni. Við unnum að því að túlka Sharon Tate eins og hún var í raun­veru­leik­anum en ekki eins og fólk sá hana á hvíta tjald­inu. Systir Sharon aðstoð­aði okkur líka og hún gaf t.d. Margot hring og ilm­vatn sem var í eigu Sharon Tate. Hringinn bar Margot allan tím­ann meðan á tökum stóð. Þannig að það má segja að hún [Sharon Tate] hafi verið með okkur í anda.“

Nokkrar af þeim kvik­myndum sem Heba hefur farðað fyrir:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Bridget Fonda sést opin­ber­lega í fyrsta sinn í langan tíma

„Það er svo gott að vera bara venjuleg manneskja.“
Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Heimur

Sextugur maður sló óvenju­legt heims­met með ótrú­legri þraut­seigju

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Heimur

Paris Jackson krefst 600 millj­óna dala úr dán­ar­búi föður síns

Innlent

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Hefur þú séð manninn?
Innlent

Segir sölu Ljós­leið­ar­ans geta ógnað almanna­hags­munum

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Þrír hand­teknir vegna ráns í Graf­ar­vogi