Azzadine Biya hefur búið á Íslandi í tæpt ár en hann er í dag orðinn örvæntingarfullur því hann fær hvergi vinnu. Þrátt fyrir að sækja daglega um störf hefur það engu skilað fram til þessa.
Í samtali við Mannlíf viðurkennir Azzadine að kvíðinn er farinn að hellast yfir hann. Sjálfur er hann á fullu í að bæta kunnáttu sína í íslensku og óttast að tungumálakunnáttan hindri það að hann fái nokkurt starf hér á landi. „Núna er ég búinn að vera atvinnulaus svo mánuðum skiptir og ég hef reynt að komast af án þess að vera byrði á samfélaginu. Ég held að ég hafi sótt um næstum hvert einasta starf sem auglýst er og er á fullu að bæta íslenskukunnáttuna. Fram til þess hefur ekkert gengið því ég tala ekki fullkomna íslensku. En á meðan hef ég ekki lengur efni á að borga hvorki leiguna né reikningana. Er einhver sem getur hjálpað mér?,“ spyr Azzadine og bætir við:
„Ef einhver getur hjálpað mér mun ég eiga í eilífri þakkarskuld við viðkomandi. Ég er orðinn svo örvæntingarfullur. Vinsamlegast hjálpið mér. Ég hef ákveðna hæfileika í starfi og virði vel sem innflytjandi þá menningu sem hér ríkir. Það er bara svo dýrt að búa hér og erfitt þegar maður er ekki með vinnu.“