Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Heimildin í vikulega útgáfu – Enginn eigandi fer með meira en 8% hlut

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Aðstandendur Sameinaða útgáfufélagsins, sem varð til við sameiningu Kjarnans og Stundarinnar í janúar, hafa ákveðið að hefja vikulega prentútgáfu á áskriftarblaði Heimildarinnar frá og með 21. apríl.

Efling prentútgáfunnar hefur verið í skoðun síðustu vikur, en endanleg ákvörðun er tekin sem viðbragð við þeirri skerðingu á innlendri dagblaðaútgáfu sem orðin er við fráhvarf Fréttablaðsins.

Í gær boðaði Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, að ríkisstjórnin stefndi á að skuldbinda sig í skattalegar aðgerðir til þess að hvetja til áskrifta að fjölmiðlum. Þar með er líklegt að áskriftarfréttablöð festi sig enn frekar í sessi.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Markmið Heimildarinnar er að efla enn ritstjórnina og vinna að greinandi og samfélagslega gagnlegum umfjöllunum. Mat aðstandenda hennar er að með vikulegri útgáfu sé hlutverki Heimildarinnar betur framfylgt.

Sameinaða útgáfufélagið er í dreifðu eignarhaldi, þar sem enginn eigandi fer með meira en 8% hlut, og leggur áherslu á sjálfstæði frá hagsmunablokkum og stjórnmálaöflum.

- Auglýsing -

Til þess að tryggja sjálfstæði ritstjórnar til langs tíma starfar Heimildin eftir eigin kröfum um að stunda sjálfbæran rekstur og starfa þannig á forsendum almennings og áskrifenda fremur en tiltekinna fjármögnunaraðila.

Fram að þessu hefur Heimildin komið út tvisvar í mánuði og forveri hennar í prentútgáfu, Stundin, komið út einu sinni til tvisvar í mánuði.

Heimildin kemur út vikulega. Frábær fjölmiðill sem veitir svo sannarlega gott aðhald.

Kannanir meðal áskrifenda hafa áður gefið til kynna að stærstur hópur kýs vikulega prentútgáfu.

- Auglýsing -

Hægari útgáfutíðni verður áfram yfir sumartímann, með mánaðarlegum, veglegri prentútgáfum, í þeim tilgangi að tryggja sumarleyfi og sjálfbærni útgáfunnar. Reynslan af breytingunni verður síðan metin heildrænt út frá áhrifum hennar á ritstjórn Heimildarinnar og viðbrögðum lesenda hennar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -