Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Heimkaup hefur hækkað verð um allt að 12,5 prósent á innan við þremur mánuðum – VERÐKÖNNUN

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Verðkönnun Mannlífs leiddi í ljós að Heimkaup hefur hækkað verðið hjá sér umtalsvert á innan við þremur mánuðum. Skoðuð voru verð á 20 vörutegundum og höfðu 18 þeirra hækkað í verði. Vörurnar hækkuðu á bilinu 0,3 til 12,5 prósent.

Verðkönnunin að þessu sinni er samanburður á verði Heimkaupa þann 25. mars og 20. júní. Skoðaðar voru 20 vörur sem áður höfðu verið í könnun Mannlífs fyrir tæpum þremur mánuðum. Verð voru fengin af síðu Heimkaupa í báðum tilfellum.

Niðurstöður

Af þeim 20 vörutegundum sem skoðaðar voru hafði verð hækkað á 18 þeirra. Ein vara reyndist vera á sama verði og önnur á lægra verði.

Furðu vekur að oft erum við að sjá umtalsverðar hækkanir á ekki lengri tíma en raun ber vitni. Fjórar vörur höfðu hækkað gríðarlega mikið: Smjör um 8,9 prósent, Pepsi Max 2 lítra um 11,4 prósent, Ísey hreint skyr 170 gr um 10,1 prósent og Stellu rúgbrauð sem hækkaði  mest eða um 12,5 prósent.

Kílóverð á banönum stóð í stað og íslensk gúrka lækkaði í verði um 4,6 prósent. Ein vara reyndist ekki vera til hjá Heimkaup þegar könnun var gerð og er hún merkt með X í töflu.

- Auglýsing -

 

Hér að neðan er tafla með öllum upplýsingum.

 

- Auglýsing -

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -