Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Hélt að fegrunaraðgerð væri lykillinn að hamingju

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það var alltaf rödd í höfðinu á mér sem sagði: „Þú lítur ekki vel út, þú ert ekki með fullkominn líkama“,“ segir ung kona að nafni Laura Baylis í viðtali við BBC í þættinum Plastic Surgery UndressedÞátturinn er tileinkaður fegrunaraðgerðum.

Þegar Laura kom sem gestur í þáttinn var hún að íhuga að gangast undir aðgerð sem kallast liposculpture. Aðgerðin snýst um að flytja fitu frá einum líkamshluta yfir á annan.

Laura lýsti því í samtali við BBC að stríðni nokkurra skólafélaga hennar hafi valdið því að hún fór að íhuga fegrunaraðgerðir fyrir nokkrum árum.

Í þættinum Plastic Surgery Undressed fékk Laura að fylgjast með lækni framkvæma liposculpture-aðgerð en þá snerist henni hugur. „Ég held að þessi aðgerð sé ekki fyrir mig. Ég ætla frekar að mæta í ræktina og borða hollt. Það eru ýmis möguleikar í boði sem ég get látið reyna á áður en ég fer í aðgerð. Ég hélt að aðgerðin væri lykillinn að því að finna hamingju,” viðurkenndi Laura.

Síðar í þættinum var sagt frá því að eftir að Laura tók ákvörðum um að láta fegrunaraðgerðir eiga sig fór hún til sálfræðings til að vinna á rót vandans. „Mér er farið að líða mun betur í eigin skinni,” er haft eftir henni í umfjöllun BBC.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -